Lífið

Þykir vænt um Bill O'Reilly

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Jon Stewart er einn vinsælasti sjónvarpsmaður Bandaríkjanna.
Jon Stewart er einn vinsælasti sjónvarpsmaður Bandaríkjanna.
Þáttastjórnandi Daily Show Jon Stewart segir í viðtali við Rolling Stone að honum þyki vænt um Bill O‘Reilly, hinn harðskeytta íhaldsmann frá Fox News.

„Það er ótrúleg kynferðisleg spenna á milli okkar. Hann minnir mig á alla sem ég ólst upp með. Ég elska fæðingarbæ minn þó að ég sé ósammála mörgum sem búa þar. Það hjálpar mér að skilja að ég þarf að vera opinn fyrir rökræður,“ segir Stewart.

„Fólk spyr mig: „Af hverju færðu hann í viðtal til þín? Hann er illur!“ En ég held ekki að hann sé illur. Hann er með skoðun sem er mjög fastskorðuð. Þetta er dogmatík.“

Hér fyrir neðan er hægt að sjá nýlegar rökræður um forréttindi hvítra á milli kappanna.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×