Bíó og sjónvarp

Í viðræðum vegna X-Men

Ástralski leikarinn Hugh Jackman er í viðræðum um að leika í X-Men: Apocalypse.

Hinn 46 ára leikari hefur farið með hlutverk Wolverine í X-Men-myndunum við góðar undirtektir.

„Ég hef talað við fólkið og ég má ekki segja nákvæmlega hvað er bígerð en það er margt mjög spennandi að krauma undir í heimi X-Men, þar á meðal Wolverine-myndin. Það er hellingur af svölum pælingum í gangi,“ sagði Jackman.

X-Men: Apocalypse er væntanleg 2016 en The Wolverine í mars 2017.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.