Fordæma „grimmdarverk og misþyrmingar“ í Írak Atli Ísleifsson skrifar 15. ágúst 2014 15:28 Frank-Walter Steinmeier, utanríkisráðherra Þýskalands, sagðist að ekki væri hægt að standa hjá þegar verið væri að slátra fólki í Írak. Vísir/AFP
Utanríkisráðherrar aðildarríkja Evrópusambandsins hafa fordæmt þau „grimmdarverk og misþyrmingar“ sem hafa verið framin gegn trúarlegum minnihlutahópum í Írak. Ráðherrarnir komu saman til fundar í Brussel fyrr í dag, þar sem ákveðið var að hvert og eitt aðildarríki fengi að ákveða hvort það bjóði hersveitum Kúrda vopn í baráttu þeirra við vígasveitir IS-samtakanna í norðurhluta Íraks. Frank-Walter Steinmeier, utanríkisráðherra Þýskalands, sagðist eftir fundinn ætla fara til Íraks til að funda með leiðtogum Kúrda og írökskum ráðamönnum og ræða hvar og hvernig aðstoðar væri þörf. „Við getum einfaldlega ekki bara staðið hjá þegar verið er að slátra fólki þarna.“Í frétt BBC segir að Frakkar og Bandaríkjamenn hafi þegar tilkynnt að þeir muni koma vopnum í hendur Kúrda, en áætlað er að um 1,2 milljónir Íraka hafi neyðst til að flýja heimili sín vegna ofsókna IS-liða. Haider al-Abadi hefur nú tekið við embætti forsætisráðherra Íraks og er grafalvarlegt ástand í norðurhluta landsins eitt þeirra verkefna sem bíða hans. Abadi tók við embættinu af Nouri al-Maliki sem sóttist eftir að sitja þriðja kjörtímabilið. Með skipun Abadi tókst að binda endi á margra mánaða pattstöðu í írökskum stjórnmálum eftir að kosningar fóru fram í landinu í apríl síðastliðinn.
Mest lesið Albert ákærður fyrir kynferðisbrot Innlent Fimm grímuklæddir brutu upp útidyrahurð Innlent Enn slasast tugir í ókyrrð Erlent Sagður hafa nauðgað fatlaðri konu og látið son hennar horfa á Innlent „Enn fólk að birtast sem hafði ekki hugmynd um þetta“ Innlent Mögulega komnir úr landi en ekki ástæða til að lýsa eftir þeim Innlent Guðmundur Elís í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Innlent Einn látinn og þúsundir án vatns og rafmagns Erlent Allt að fimmtíu prósent aukning tilfella alvarlegrar ókyrrðar Innlent Klámáhorf barna enn að dragast saman Innlent Fleiri fréttir Einn látinn og þúsundir án vatns og rafmagns Enn slasast tugir í ókyrrð Orbán hyggst óvænt heimsækja Úkraínu Í höndum Macron að koma í veg fyrir stórsigur Le Pen Hæstiréttur segir Trump njóta friðhelgi að hluta Einn helsti rithöfundur Albaníu er allur Strangrúaðir mótmæltu herskyldu Varað við fellibylnum Beryl sem er á leið yfir Karíbahafið Kínversk geimflaug hrapaði til jarðar Flestir á því að Biden valdi ekki starfinu Sögulegur dagur fyrir frönsku þjóðina að baki „Ástæða til að hafa áhyggjur“ Franska þjóðfylkingin leiðir samkvæmt útgönguspám Vöknuðu á floti og stigu út með drulluna upp að hnjám „Fólk er einfaldlega hrætt“ Leitin að Slater blásin af Frakkar ganga að kjörborðinu Útlitið svart hjá Macron fyrir kosningar á morgun Bandarískum kjósendum líst illa á stöðuna í forsetaslagnum Ungur maður tekinn af lífi fyrir að hlusta á K-pop í Norður-Kóreu Efna til allsherjarleitar að Slater Mossack og Fonseca heitinn sýknaðir Segir Biden „algjörlega vanhæfan“ „Ég veit að ég er ekki ungur maður“ „Fíaskó næturinnar“ gæti kallað á nýjan frambjóðanda Ævilangt fangelsi fyrir morðið og nauðganirnar Biden augljóslega þyngdur af ellibelgnum Sakfelldur fyrir að myrða Emilie Meng Þakið á flugvelli í Nýju Delí hrundi vegna mikillar rigningar Biden hikandi og hás í fyrri kappræðum kosninganna Sjá meira