Innlent

Segja Hönnu Birnu sverta mannorð sitt

Jakob Bjarnar skrifar
Hanna Birna kýs að svara ekki hinum alvarlegu ásökunum Jóns Bjarka.
Hanna Birna kýs að svara ekki hinum alvarlegu ásökunum Jóns Bjarka.
Jón Bjarki Magnússon, blaðamaður á DV, fullyrðir að Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra standi í því að dreifa um sig, og félaga sinn á DV, Jóhann Pál Jóhannsson, óhróðri. „[Hún]gefur jafnvel í skyn við fólk að við eigum við geðræn vandamál að stríða. Mér finnst óhugnanlegt að fólk í valdastöðum hegði sér svona og velti því fyrir mér hvort ráðherrann hafi enga sómatilfinningu?“

Þetta segir í yfirlýsingu sem Jón Bjarki hefur sent út á Facebook og hefur farið víða þar. Jón Bjarki segist reyndar hafa heyrt af tilraunum hennar til að sverta mannorð þeirra félaga „til að vega að trúverðugleika okkar í þeim tilgangi að stöðva fréttaflutning DV um trúnaðarbrest innanríkisráðuneytisins gagnvart hælisleitendum. Nú þegar ég heyri úr öðrum áttum að þessi óhróður ráðherrans er komin á kreik víðar get ég ekki orða bundist. Að ráðherra á Íslandi beiti valdi sínu til þess að fara í óhróðursherferð gagnvart blaðamönnum í þeim tilgangi að koma í veg fyrir óþægilega umfjöllun er ekki eðlilegt.“

Vísir greindi frá væringum Reynis Traustasonar og ráðuneytisins fyrir helgi en Reynir var í viðtali í Harmageddon í morgun vegna málsins.

Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir Vísis til að ná sambandi við Hönnu Birnu og/eða aðstoðarmenn hennar tvo; Þórey Vilhjálmsdóttur og Gísla Frey Valdórsson var það án árangurs. Að endingu var haft samband til upplýsingafulltrúa innanríkisráðuneytisins, Jóhannesar Tómassonar, með boð þess efnis hvort ráðherra vildi ekki svara hinum alvarlegu ásökunum? Jóhannes sendi Vísi í kjölfarið skilaboð, svohljóðandi: „Innanríkisráðherra vil ekki svara þessari umfjöllun.“

Uppfært kl. 15:30

Þórey Vilhjálmsdóttir hafði samband nú rétt í þessu, hún hafði ekki haft tök á að svara fyrr í dag og í morgun en vill koma þessari athugasemd að: „Líkt og ég hef áður sagt eru ásakanir og aðdróttanir fulltrúa DV í þessu máli ekki svaraverðar.  Það á við um þessi umæli eins og mörg önnur sem blaðið hefur undanfarið viðhaft um ráðherra, innaríkisráðuneytið og starfsfólk þess.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×