Ársmiðahafar Stjörnunnar ekki í gróðahug

Um sex þúsund miðar seldust þegar ársmiðahöfum var gefinn kostur á að kaupa miða á undan hinum almenna borgara. Vakti salan nokkra athygli en ljóst er að fjölmargir ársmiðahafar keyptu fleiri tugi miða hver.
Dyggur stuðningsmaður og fyrrverandi leikmaður Stjörnunnar keypti til að mynda 30 miða og kom þeim til vina og ættingja um leið. Bróðir hans gerði slíkt hið sama.
Uppselt er á leikinn en þeir fjögur þúsund miðar sem eftir voru seldust upp á skömmum tíma eftir að almenn sala hófst. Í kjölfarið fór fólk að auglýsa eftir lausum miðum, m.a. á Bland.is, en þar virðast fáir miðar vera í boði. Raunar eru engir miðar til sölu á sölutorginu þegar þetta er skrifað.
Skemmst er að minnast þegar seldist upp á umspilsleik íslenska karlalandsliðsins gegn Króatíu í nóvember. Um leið fóru fjölmargir óprúttnir aðilar með miðana í endursölu á Bland.is og reyndu að græða á sölunni. Einn gekk svo langt að hann seldi löndum sínum miða á leikinn án þess að afhenda nokkra miða.
Stjörnumenn virðast hins vegar aðeins einbeita sér að því að koma miðum til stuðningsmanna, vina og ættingja svo reikna má með blárri stúku á miðvikudaginn þegar Evrópumeistararnir frá 2010 mæta í heimsókn.
Leikur Stjörnunnar og Inter á miðvikudagskvöld hefst klukkan 21 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Þá verður bein textalýsing á Vísi. Síðari leikur liðanna á Ítalíu verður einnig í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
Tengdar fréttir

Uppselt á leik Íslands og Króatíu
Uppselt er á leik Íslands og Króatíu þann 15. nóvember sem fram fer á Laugardalsvellinum.

Króati á flautunni í leik Stjörnunnar og Inter
Marijo Strahonja verður á flautunni þegar Stjarnan tekur á móti Inter deginum áður en hann verður 39 árs gamall.

Uppselt í hópferðina á San Siro
Sigurður Gunnarsson, deildarstjóri íþróttadeildar Úrvals Útsýnar staðfesti við Vísi rétt í þessu að uppselt væri í hópferðina á leik Inter og Stjörnunnar á San Siro en að ferðaskrifstofan væri að kanna möguleikann á því að bæta við miðum.

300 aukamiðar á landsleikinn seldir klukkan tvö í dag
Um 300 miðar á landsleik Íslands og Króatíu fara í sölu kl. 14:00 í dag og fer salan fram í gegnum miðasölukerfi hjá www.midi.is.

Ársmiðahafar bíða í röð eftir miðum á leikinn gegn Inter
Stjarnan mætir Inter í Evrópudeildinni á miðvikudaginn og mikill áhugi er á miðum á leikinn.

Búumst við ævintýralegri stemningu
Stjarnan og ítalska stórliðið Inter mætast næsta miðvikudag í Evrópudeildinni og verður leikið á Laugardalsvelli. Það er þegar uppselt á leikinn og von á einstakri stemningu í Dalnum á miðvikudagskvöldið.

Þórir hjá KSÍ: Alltaf hætta á svartamarkaðsbraski með miða
"Fyrstur kemur fyrstur fær“ gildir þegar miðasala á Króatíuleikinn hefst í dag.

Nánast uppselt á leik Stjörnunnar og Inter
Stærsti hluti miðanna seldist upp á fimmtán mínútum í morgun.

Miðarnir seldust upp á sex mínútum
Nú er endanlega orðið uppselt á leik Íslands og Króatíu í umspilinu um sæti á heimsmeistaramótinu í Brasilíu á næsta ári en miðarnir fóru á sex mínútum.

Ítalskur blaðamaður hélt að hann væri að taka viðtal við leikmann Stjörnunnar
Ítalskir blaðamenn vita margir ekki mikið um Stjörnuliðið sem er seinna í þessum mánuði að fara mæta stórliði Internazionale Milan í umspili um sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar.

Næturmiðarnir komnir á Bland
Miðar ganga nú þegar kaupum og sölum á leik Íslands og Króatíu. Á síðunni bland.is má sjá þó nokkrar auglýsingar þar sem óskað er eftir miðum en einnig hafa miðar verið boðnir til sölu.

Tveir leikir Stjörnunnar færðir vegna leikjanna við Inter
Mótanefnd Knattspyrnusamband Íslands hefur ákveðið að breyta leikdögum á tveimur leikjum Stjörnunnar en þetta er gert vegna þátttöku Stjörnunnar í Evrópudeild UEFA.

Svikinn um miða á svarta markaðnum
"Við viljum hvetja fólk til að vera á varðbergi gagnvart allri sölu á netinu,“ segir Þorgrímur Óli Sigurðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Selfossi.