Skoðun

Persónunjósnir sjálfstæðismanna í Kópavogi

Hjálmar Hjálmarsson skrifar
Það er sjálfsagður og lýðræðislegur réttur hvers manns að taka þátt í stjórnmálum. Rétturinn til að bjóða fram til sveitarstjórnarkosninga er varinn með margvíslegum hætti. Þær hindranir sem frambjóðendur þurfa að yfirstíga eru ekki miklar. Í Kópavogi þurfa framboð að afla sér að lágmarki 80 undirskrifta frá kjósendum sem gefa þar með framboðinu tækifæri til að nýta sér þennan dýrmæta lýðræðisrétt sinn; að taka þátt í stjórn bæjarfélagsins. Þessari undirskrift fylgja engar kvaðir að nokkru leyti. Sjálf atkvæðagreiðslan á kjördag er enn sem komið er leynileg, sem betur fer. Engu að síður eru fjölmargir sem vilja ekki tengjast stjórnmálaflokkum á nokkurn hátt. Sjá þá sem gamaldags, spillta og vinna fyrst og fremst að sérhagsmunum fárra í stað þess að hugsa um hag samfélagsins.

Undanfarna daga hafa frambjóðendur Næstbestaflokksins í Kópavogi safnað um 120 undirskriftum frá kjósendum sem staðfesta þar með að þeir styðji okkur til framboðs. Við hétum þessu fólki trúnaði, að þessar upplýsingar kæmu hvergi fram nema hjá kjörstjórn sem myndi síðan eyða þeim að kosningum loknum. Að engin skuldbinding fælist í undirskriftinni og þær yrðu hvergi birtar opinberlega. Að framboð okkar tengdist ekki neinum af starfandi stjórnmálaflokkum. Að frambjóðendur Næstbestaflokksins hefðu engin bein hagsmunatengsl við einstök fyrirtæki, stofnanir eða félagasamtök í bænum. Að við vildum vinna fyrir alla í Kópavogi, en ekki fyrir fáa útvalda.

Fyrirgreiðslupólitík

Nú hefur það fáheyrða gerst, að umboðsmaður Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, Bragi Michaelsson, óskar eftir því að fá afhenta meðmælendalista allra framboða til kosninganna í vor. Til hvers veit ég ekki. Eina skýringin sem hann gaf var sú að þetta hefði „alltaf verið gert“, sem er auðvitað firra. Stjórnmálaflokkar eru löngu hættir þessum ósið sem er ekkert annað en lágkúrulegar persónunjósnir. Það er nefnilega svo að sumir menn og flokkar telja sig „eiga“ atkvæði kjósenda í bænum og vilja fá að vita hverjir ætli að svíkjast undan merkjum. Þetta eru sömu mennirnir og telja sig eiga Kópavog, að þeir geti gengið í sjóði bæjarins, fengið verkefni, lóðir, djobb og fyrirgreiðslu eins og þeim hentar. Þetta er „gamli tíminn“ sem mætir nútímanum. Fyrirgreiðslupólitíkin sem abbast upp á heilbrigða skynsemi.

Umboðsmenn Næstbestaflokksins hafna því alfarið að Sjálfstæðisflokkurinn fái aðgang að meðmælendalistum og upplýsingar um nöfn þeirra 120 íbúa sem þar er að finna. Byggingaverktakinn og skógræktarfrömuðurinn Bragi Michaelsson verður að finna þörf sinni til persónunjósna annan farveg. Hverjir styðja Næstbestaflokkinn til framboðs í kosningunum í vor er trúnaðarmál milli framboðsins og kjörstjórnar Kópavogs og verður það áfram. Það kemur hvorki Sjálfstæðisflokknum né Braga Michaelssyni nokkurn skapaðan hlut við.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×