Telja alvarlega ágalla á ákæru

Verjendurnir segja að þannig sé ómögulegt fyrir þá að átta sig með fullnægjandi hætti á því hvað hverjum og einum hinna ákærðu er gefið að sök, sem geri þeim erfitt fyrir að átta sig á fyrir hvað nákvæmlega umbjóðendur þeirra eru ákærðir hvor um sig. Vegna þess sé erfiðara en ella að koma að vörnum í málinu.
Þeir telja þetta ýmist eiga að leiða til frávísunar eða sýknu í málinu.
Dómari í Héraðsdómi Reykjavíkur hafði orð á þessu við saksóknara og spurði: „Af hverju er það ekki tekið fram í ákæru að þeir séu ákærðir fyrir samverknað?" Ríkissaksóknari svaraði því til að „það ræðst af atvikum máls hvort um sé að ræða samverknað eða ekki." Saksóknari telur ekki þurfa að taka fram sérstaklega hvort ákært sé fyrir samverknað, til dæmis með að segja að ákærðu hafi framið brotin í félagi við hvorn annan.
Tengdar fréttir

Stokkseyrarmálið: Fórnarlamb segir misþyrmingarnar hafa staðið yfir í hálfan sólarhring
Fær enn martraðir vegna árásarinnar.

Stokkseyrarmálið: „Ég þori ekki að vera í Reykjavík“
Tekin var skýrsla af seinni manninum sem sætti misþyrmingum í Stokkseyrarmálinu svokallaða í Héraðsdómi Reykjavíkur síðdegis. Hann lýsir hryllilegum misþyrmingum sem hafi haft varanleg áhrif á hann.

Stokkseyrarmálið fyrir héraðsdómi: „Þetta voru bara pyntingar“
Framhald aðalmeðferðar í Stokkseyrarmálinu hófst fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. "Þetta var sterageðveiki í gangi," sagði faðir eins hinna ákærðu fyrir dómi.

Stokkseyrarmálið fyrir héraðsdómi: Vafði belti um háls barnsmóður sinnar
Barnsmóðir Stefáns Loga Sívarssonar, sem er ákærður í Stokkseyrarmálinu, segir hann hafa hótað að drepa barn þeirra.

Aðalmeðferð í Stokkseyrarmálinu heldur áfram í dag
Fimm menn eru ákærðir fyrir frelsissviptingar og hrottalegar líkamsárásir.

Stokkseyrarmálið: Fórnarlambið sveipað plasti
Aðalmeðferð í Stokkseyrarmálinu hélt áfram í dag. Faðir Stefáns Loga Sívarssonar bar vitni sem og húsráðandi á Stokkseyri. Þá var spiluð skýrslutaka af vitni sem lést áður en aðalmeðferðin hófst.

Stokkseyrarmálið: Segir ljóst að fórnarlambið hafi lent í slagsmálum
Aðalmeðferð í Stokkseyrarmálinu heldur áfram í dag. Húsráðandi á Stokkseyri kom fyrir dóm og þá verður spiluð skýrslutaka af manni sem lést fyrir skömmu.

Stefán Logi: „Ég var mjög illa haldinn andlega og líkamlega“
Aðalmeðferð hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í Stokkseyrarmálinu svokallaða í morgun, þar sem fimm menn eru ákærðir meðal annars fyrir frelsissviptingar og sérstaklega hættulegar líkamsárásir.

Fórnarlamb Stokkseyrarmálsins krefst sex milljóna í bætur
Fórnarlambið í svokölluðu Stokkseyrarmáli krefur kvalara sína um sex milljónir króna í bætur. Hann var bundinn við burðarbita í kjallara klukkustundum saman.

Stokkseyrarmálið: Vitnisburður látins manns spilaður af myndbandi
Aðalmeðferð í Stokkseyrarmálinu heldur áfram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Segir einsýnt að engin frelsissvipting hafi átt sér stað
Verjandi Stefáns Loga Sívarssonar segir einsýnt af framburðum vitna, ákærðu og brotaþola sjálfs að hann hafi aldrei verið sviptur frelsi sínu.