Kærir Katrínu Jakobsdóttur fyrir leka á trúnaðarupplýsingum Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 18. september 2014 15:52 Í kærunni segir Ólafur að Katrín hafi verið í pólitískri aðför að Menntaskólanum Hraðbraut og í persónulegri aðför gegn sér.
Ólafur Haukur Johnson, skólastjóri Menntaskólans Hraðbrautar, hefur kært Katrínu Jakobsdóttur, fyrrverandi mennta- og menningarmálaráðherra, til ríkissaksóknara fyrir að leka trúnaðarupplýsingum úr ráðuneytinu til DV. Ólafur segir í kærunni að honum sé ekki ljóst hver nákvæmlega lak upplýsingunum en honum þykir sennilegast að það hafi verið Katrín eða aðstoðarmaður hennar, Elías Jón Guðjónsson. Í kærunni segir Ólafur að Katrín hafi verið í pólitískri aðför að Menntaskólanum Hraðbraut og í persónulegri aðför gegn sér sem hafi byrjað árið 2010. Telur Ólafur að það hafi verið vegna þess að skólinn var einkarekinn og segir hann það ekki samræmast pólitísku viðhorfi Katrínar. Aðförin hafi meðal annars falist í því að leka trúnaðarupplýsingum í DV til að koma höggi á skólann og skaða orðspor hans sem og orðspor Ólafs. Í lok kærunnar lýsir Ólafur því hvaða áhrif aðför menntamálaráðherra hafði á skólann. Segir Ólafur að 20 starfsmenn hafi misst vinnuna, 210 nemendur hafi misst vinnustað sinn og að skólinn og eigendur hans hafi orðið fyrir miklu fjárhagslegu tjóni.
Tengdar fréttir Engin Hraðbraut Ekkert verður af fyrirhugaðri skólasetningu hjá framhaldsskólanum á fimmtudag sökum fjárskorts. Þrjátíu nemendur sem hugðu á nám við skólann þurfa að róa á önnur mið. 12. ágúst 2014 09:56 Kennsla í Hraðbraut hefst í haust Í tilkynningu frá skólastjóra segir að menntamálaráðuneytið hafi veitt skólanum skriflega viðurkenningu til kennslu til stúdentsprófs. 22. maí 2014 16:18 Óeðlilegar lánveitingar Hraðbrautar Í nýrri greinargerð Ríkisendurskoðunar kemur fram að á tímabilinu 2003-2009 hafi arðgreiðslur Menntaskólans Hraðbraut til eigenda hans numið samtals 82 milljónum króna. Ríkisendurskoðun telur að skólinn hafi í raun ekki haft fjárhagslegt bolmagn til að greiða þennan arð. Þá kemur fram að lán skólans til aðila tengdra eigendum hans hafi numið samtals 50 milljónum króna í árslok 2009. Að mati Ríkisendurskoðunar eru þessar lánveitingar óeðlilegar enda tengjast þær ekki rekstri skólans. Stofnunin telur óvíst að fjárhagslegar forsendur séu fyrir áframhaldandi rekstri hans. 1. október 2010 10:28 Ætla ekki að endurnýja samstarfið við Hraðbraut Samstarfssamningur ríkisins við menntaskólann Hraðbaut verður ekki framlengdur en skólinn hefur sætt gagnrýni fyrir sérkennilega meðferð opinbers fjár sem rann til skólans. Þannig gerði ríkisendurskoðun úttekt á skólanum en niðurstaða hennar var áfellisdómur fyrir stjórnendur skólans. 11. desember 2010 09:51 Greiddu sér 177 milljónir í arð Stjórnendur og eigendur Hraðbrautar greiddu sér 177 milljónir í arð úr skólanum og félögum tengdum honum. Skólinn er nú rekinn með tapi og rekststarforsendur hans sagðar hæpnar. 14. desember 2010 19:10 Fjölmörg úrræði í boði fyrir nemendur Hraðbrautar Þeir þrjátíu nemendur sem þurfa nú að leita annað vegna rekstrarörðugleika Hraðbrautar þurfa ekki að örvænta. 12. ágúst 2014 10:38 Óvenju lágt hlutfall í launakostnað hjá Hraðbraut Aðeins 37% af rekstrarútgjöldum menntaskólans Hraðbrautar eru laun. Í framhaldsskólum á vegum ríkisins er hlutfall launakostnaðar að jafnaði tvöfalt hærra eða um 75%. Þetta kemur fram í skýrslu menntamálanefndar um Hraðbraut en í henni eru stjórnendur skólans harðlega gangrýndir fyrir meðferð sína á opinberum fjármunum. 14. desember 2010 12:21 "Eignir Hraðbrautar líklega á brunaútsölu“ Eigandi Menntaskólans Hraðbrautar segir að framundan sé brunaútsala á eignum skólans. Hraðbraut mun ekki taka til starfa á fimmtudag vegna skorts á nemendum. 12. ágúst 2014 20:00 Hraðbraut leggst af árið 2012 - skólastjórinn brúar bilið þangað til Mennta- og menningarmálaráðuneytið og Menntaskólinn Hraðbraut hafa framlengt þjónustusamning skólans við ríkið fram til útskriftar núverandi nemenda á fyrra ári. Þetta var tilkynnt á sameiginlegum fundi nemenda og starfsfólks nú síðdegis en tilkynning þess eðlis var birt á heimasíðu skólans í dag. 23. febrúar 2011 18:09 Skólastjóri Hraðbrautar segir eftirlit hafa skort Ólafur H. Johnson, skólastjóri Menntaskólans Hraðbraut, tekur undir með Ríkisendurskoðun um að lánveitingar skólans til starfsemi sem tengdist ekki skólanum á nokkurn hátt „geti ekki talist æskileg." Í greinargerð Ríkisendurskoðunar eru lánveitingar Hraðbrautar harðlega gagnrýndar. Ólafur hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann fordæmir lánin einnig: „Þessi lánastarfsemi var birtingarmynd hugsunarháttar og hugmynda sem voru áberandi í samfélaginu og heyrir sögunni til." 1. október 2010 11:27 Hraðbraut: Segist skulda ríkinu 120 milljónir en ekki 192 Ólafur Johnson, skólastjóri Hraðbrautar, hefur dregið þá upphæð sem Ríkisendurskoðun segir að skólin hefi fengið ofgreitt, í efa. Ríkisendurskoðun segir upphæðina 192 milljónir en Ólafur segir að hún sé nær 120 milljónum. 12. desember 2010 12:13 Nemendur Hraðbrautar fá skólagjöldin endurgreidd Ekki verður af því að menntaskólinn Hraðbraut hefji aftur starfsemi. Eigandi skólans segir of fáa nemendur hafa greitt skólagjöldin til að skólinn geti staðið undir sér. 12. ágúst 2014 12:30 Ríkisendurskoðun fer yfir alla samningana Ríkisendurskoðun hefur kallað eftir öllum skuldbindandi samningum ráðuneytanna til endurskoðunar. Er þar miðað við alla núgildandi samninga sem útlistaðir eru í fjárlagafrumvarpinu 2011 en eru þeir 141 talsins. 15. desember 2010 06:15 Mest lesið „Þetta eru atburðir sem við höfum aldrei séð áður“ Innlent Svava Lydia komin í leitirnar Innlent Afsökunarbeiðni til Ólafar ekki í kortunum Innlent Segir afnám samsköttunar svik við kjósendur Innlent Kvikugangur frá Krýsuvík gæti náð inn í Heiðmörk Innlent Lýsa eftir Svövu Lydiu Innlent Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Erlent ÍR kveikti á skiltinu án leyfis Innlent Tímamót í opinberri heimsókn Höllu til Noregs Innlent Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Erlent Fleiri fréttir Gefur kost á sér þrátt fyrir „krankleika“ í vetur og á ekki von á „heiftúðlegum átökum“ „Ekki leika þennan leik“ Félag atvinnurekenda svarar Ríkisendurskoðun Svava Lydia komin í leitirnar „Þetta eru atburðir sem við höfum aldrei séð áður“ Milljarðakrafa varði ekki sérstaklega mikilvæga hagsmuni Afsökunarbeiðni til Ólafar ekki í kortunum Logi í Úkraínu og markaðirnir rétta úr kútnum Myndavélarnar mikilvægar og upptökurnar góð sönnunargögn „Alvarlegt að saka ríkisendurskoðanda um að villa um fyrir Alþingi“ Norðurlöndin vinni með Bandaríkjunum svo þau fari ekki í „ranga átt“ Tímamót í opinberri heimsókn Höllu til Noregs ÍR kveikti á skiltinu án leyfis Vilja betri afkomutryggingu fyrir bændur sem verða fyrir uppskerutjóni Guðmundur Árni sækist eftir endurkjöri Segir afnám samsköttunar svik við kjósendur Tíðir Esjufarar hryggir vegna örlaga Steins Kvikugangur frá Krýsuvík gæti náð inn í Heiðmörk Tvímennir fangaklefar og frekara húsnæði til skoðunar til að leysa plássleysi Blés til skyndifundar vegna innflutnings gerviópíóða Stjórnarandstaðan gekk á dyr: Tekist á um þingskjalið í beinni Blóðbað, þingmenn ganga á dyr og ógnin við Reykjavík Forsetahjónin á leið til Noregs Lýsa eftir Svövu Lydiu Kristrún ein í framboði til formanns Bæjarstjóri og bæjarfulltrúi saka hvor aðra um brot á siðareglum „Það eru ekki skattahækkanir“ Hvalfjarðargöng lokuð vegna bilaðs bíls Áfrýja og stofna félag um réttinn til að mótmæla Munu ekki hlaupa síðustu metrana í Geirsgötu fyrr en 2026 Sjá meira
Engin Hraðbraut Ekkert verður af fyrirhugaðri skólasetningu hjá framhaldsskólanum á fimmtudag sökum fjárskorts. Þrjátíu nemendur sem hugðu á nám við skólann þurfa að róa á önnur mið. 12. ágúst 2014 09:56
Kennsla í Hraðbraut hefst í haust Í tilkynningu frá skólastjóra segir að menntamálaráðuneytið hafi veitt skólanum skriflega viðurkenningu til kennslu til stúdentsprófs. 22. maí 2014 16:18
Óeðlilegar lánveitingar Hraðbrautar Í nýrri greinargerð Ríkisendurskoðunar kemur fram að á tímabilinu 2003-2009 hafi arðgreiðslur Menntaskólans Hraðbraut til eigenda hans numið samtals 82 milljónum króna. Ríkisendurskoðun telur að skólinn hafi í raun ekki haft fjárhagslegt bolmagn til að greiða þennan arð. Þá kemur fram að lán skólans til aðila tengdra eigendum hans hafi numið samtals 50 milljónum króna í árslok 2009. Að mati Ríkisendurskoðunar eru þessar lánveitingar óeðlilegar enda tengjast þær ekki rekstri skólans. Stofnunin telur óvíst að fjárhagslegar forsendur séu fyrir áframhaldandi rekstri hans. 1. október 2010 10:28
Ætla ekki að endurnýja samstarfið við Hraðbraut Samstarfssamningur ríkisins við menntaskólann Hraðbaut verður ekki framlengdur en skólinn hefur sætt gagnrýni fyrir sérkennilega meðferð opinbers fjár sem rann til skólans. Þannig gerði ríkisendurskoðun úttekt á skólanum en niðurstaða hennar var áfellisdómur fyrir stjórnendur skólans. 11. desember 2010 09:51
Greiddu sér 177 milljónir í arð Stjórnendur og eigendur Hraðbrautar greiddu sér 177 milljónir í arð úr skólanum og félögum tengdum honum. Skólinn er nú rekinn með tapi og rekststarforsendur hans sagðar hæpnar. 14. desember 2010 19:10
Fjölmörg úrræði í boði fyrir nemendur Hraðbrautar Þeir þrjátíu nemendur sem þurfa nú að leita annað vegna rekstrarörðugleika Hraðbrautar þurfa ekki að örvænta. 12. ágúst 2014 10:38
Óvenju lágt hlutfall í launakostnað hjá Hraðbraut Aðeins 37% af rekstrarútgjöldum menntaskólans Hraðbrautar eru laun. Í framhaldsskólum á vegum ríkisins er hlutfall launakostnaðar að jafnaði tvöfalt hærra eða um 75%. Þetta kemur fram í skýrslu menntamálanefndar um Hraðbraut en í henni eru stjórnendur skólans harðlega gangrýndir fyrir meðferð sína á opinberum fjármunum. 14. desember 2010 12:21
"Eignir Hraðbrautar líklega á brunaútsölu“ Eigandi Menntaskólans Hraðbrautar segir að framundan sé brunaútsala á eignum skólans. Hraðbraut mun ekki taka til starfa á fimmtudag vegna skorts á nemendum. 12. ágúst 2014 20:00
Hraðbraut leggst af árið 2012 - skólastjórinn brúar bilið þangað til Mennta- og menningarmálaráðuneytið og Menntaskólinn Hraðbraut hafa framlengt þjónustusamning skólans við ríkið fram til útskriftar núverandi nemenda á fyrra ári. Þetta var tilkynnt á sameiginlegum fundi nemenda og starfsfólks nú síðdegis en tilkynning þess eðlis var birt á heimasíðu skólans í dag. 23. febrúar 2011 18:09
Skólastjóri Hraðbrautar segir eftirlit hafa skort Ólafur H. Johnson, skólastjóri Menntaskólans Hraðbraut, tekur undir með Ríkisendurskoðun um að lánveitingar skólans til starfsemi sem tengdist ekki skólanum á nokkurn hátt „geti ekki talist æskileg." Í greinargerð Ríkisendurskoðunar eru lánveitingar Hraðbrautar harðlega gagnrýndar. Ólafur hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann fordæmir lánin einnig: „Þessi lánastarfsemi var birtingarmynd hugsunarháttar og hugmynda sem voru áberandi í samfélaginu og heyrir sögunni til." 1. október 2010 11:27
Hraðbraut: Segist skulda ríkinu 120 milljónir en ekki 192 Ólafur Johnson, skólastjóri Hraðbrautar, hefur dregið þá upphæð sem Ríkisendurskoðun segir að skólin hefi fengið ofgreitt, í efa. Ríkisendurskoðun segir upphæðina 192 milljónir en Ólafur segir að hún sé nær 120 milljónum. 12. desember 2010 12:13
Nemendur Hraðbrautar fá skólagjöldin endurgreidd Ekki verður af því að menntaskólinn Hraðbraut hefji aftur starfsemi. Eigandi skólans segir of fáa nemendur hafa greitt skólagjöldin til að skólinn geti staðið undir sér. 12. ágúst 2014 12:30
Ríkisendurskoðun fer yfir alla samningana Ríkisendurskoðun hefur kallað eftir öllum skuldbindandi samningum ráðuneytanna til endurskoðunar. Er þar miðað við alla núgildandi samninga sem útlistaðir eru í fjárlagafrumvarpinu 2011 en eru þeir 141 talsins. 15. desember 2010 06:15