Innlent

Logi í Úkraínu og markaðirnir rétta úr kútnum

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Bylgjan hádegi

Í hádegisfréttum verður rætt við Loga Einarsson ráðherra sem staddur er í Kænugarði í Úkraínu. 

Hann er staddur þar til þess að undirrita uppfærðan fríverslunarsamning EFTA-ríkjanna við Úkraínu. 

Einnig fjöllum við áfram um tollamálin en ástandið á mörkuðum heimsins lagaðist nokkuð í dag miðað við lækkanir síðustu daga. Við ræðum einnig við fjármálaráðherra og forsetisráðherra um ástandið og þær blikur sem eru á lofti. 

Einnig fjöllum við um landsfund Samfylkingarinnar sem er framundan um helgina en nú er ljóst að Kristrún Frostadóttir verður sjálfkjörinn í embætti formanns.

Í íþróttunum er það svo kvennalandsliðið okkar í fótbolta sem mætir Sviss i Þjóðadeildinni í dag. 

Klippa: Hádegisfréttir 8. apríl 2025



Fleiri fréttir

Sjá meira


×