Veiði

Fyrstu lokatölur úr laxveiðiánum

Karl Lúðvíksson skrifar
Nú hafa fyrstu árnar þegar lokað fyrir veiðimenn og tölur eru farnar að berast um heildarveiði þeirra í sumar sem var í heildina rólegt víða þó margar árnar bæru sig mjög vel.

Topp 10 listinn frá Landssambandi Veiðifélaga var birtur i gær þar sem teknar eru saman veiðitölur liðinnar vikur og þar kennir ýmsa grasa.  Fyrst ber að nefna þær lokatölur sem eru þegar komnar í hús frá Þverá og Kjarrá en þar veiddust 1195 laxar sem er ágæt veiði en þess ber að geta að stórlaxahlutfall var sérstaklega gott í ánni í sumar.  Norðurá endar í 924 löxum og þá eru upptaldar þær ár á topp tíu listanum sem hafa lokið veiði.  Þegar listinn er skoðaður sést að Ytri Rangá hefur tekið toppsætið af Eystri Rangá en stökkið í aflabrögðum skýrist af því að byrjað var að veiða með maðki 14. september og veiddust til að mynda 102 laxar á fyrstu tveimur vöktunum.  Blanda klárar þetta sumar með glæsilegri veiði en þar veiddust 1903 laxar.  Miðfjarðará er að sama skapi í ágætum málum og nálægt meðalári, Selá á ennþá nokkuð inni enda er veitt þar í rúma viku í viðbót og veiðin verið ágæt en áin sem þó stendur upp úr hvað varðar flesta veidda laxa er Laxá á Ásum með 974 laxa á sínar tvær stangir.  Það verður ekki toppað.  Annars lítur listinn svona út fyrir liðna viku.  Listann í heild sinni má finna á www.angling.is



VeiðivatnDagsetningHeildarveiðiStangafjöldiLokatölur 2013
Ytri-Rangá & Hólsá, vesturbakki.17. 9. 20142453205461
Eystri-Rangá17. 9. 20142373184797
Blanda17. 9. 20141903142611
Miðfjarðará17. 9. 20141602103667
Þverá + Kjarará17. 9. 2014Lokatölur 1195143373
Selá í Vopnafirði17. 9. 201498771664
Laxá á Ásum17. 9. 201497421062
Norðurá17. 9. 2014Lokatölur 924153351
Haffjarðará17. 9. 201482162158
Laxá í Aðaldal17. 9. 2014819181009





×