Tilkynning frá SVFR vegna Hítará Karl Lúðvíksson skrifar 11. júlí 2018 09:00 Mynd: SVFR
Hamfaraflóði í Hítardal fór varla framhjá neinum og afleiðingar þess fyrir Hítará eru ennþá óljósar. SVFR er leigutaki Hítarár og hefur verið mikið að gera hjá forsvarsmönnum félagsins vegna þess ástands sem er við ána og hefur SVFR verið í góðu sambandi við landeigendur, Veiðimálastofnun og Almannavarnir til að meta gang mála. Félagið sendi frá sér eftirfarandi tilkynningu í dag. "Eins og flestum er kunnugt um féll stór skriða úr Fagraskógarfjalli í Hítardal að morgni 7. júlí 2018. Of snemmt er að segja til um endanleg áhrif hamfaranna á vatnasvæðið til framtíðar. Þó er ljóst að Hítará mun áfram renna líkt og hún hefur gert í þúsundir ára þótt farvegurinn sé nýr að hluta. Þó áhrif skriðunnar séu ekki að fullu kunn má ljóst vera að hún kann að hafa áhrif á laxagengd og hrygningu, þó vonir allra standi til þess að þau verði sem allra minnst. Stangaveiðifélag Reykjavíkur hefur tekið fyrsta skrefið í því að stuðla að því að lífríki árinnar njóti vafans og öllum veiddum fiski verði sleppt í sumar. Að formi til hefur veiðireglum í Hítará og hliðarám hennar ekki verið breytt af veiðiréttareigendum og því er veiðimönnum heimilt að veiða samkvæmt þeim, þótt góðfúslega sé mælst til þess að öllum fiski sé sleppt. Í ljósi aðstæðna hefur SVFR ákveðið, að gefa fimm veiðileyfi á næsta veiðiári aðilum sem sleppa fiski í Hítará í sumar. Veiðimenn þurfa að senda skrifstofu félagsins upplýsingar um nafn sitt, veiðistað og stærð fisks ásamt myndbandi af sleppingunni, og verður nafn þeirra þá sett í pott. Nöfn fimm veiðimanna verða svo dregin úr pottinum að loknu veiðisumri. SVFR mun einnig vinna í því að koma klakkistum fyrir hið fyrsta, þ.e. í samráði og sátt við veiðiréttareigendur og viðeigandi yfirvöld. Á þessari stundu er veitt í Hítará og veiðiholl sem lauk veiðum í hádeginu 8. júlí landaði 30 löxum, sem verður að teljast eðlileg veiði fyrir 2ja daga holl á þessum tíma. Þeir sem hófu veiðar seinnipart 8. júlí lönduðu 7 löxum þann seinnipart sem verður að teljast gott. Þessa stundina er vatnið í ánni litað, bæði vegna rigninga á svæðinu og þess að áin er að ryðja sér nýjan farveg, en það er von okkar að áin hreinsi sig og nái jafnvægi á næstu dögum. Lax heldur áfram að ganga í Hítará og er stórstreymi nú 15. júlí, sem að öllu jöfnu skilar stærstu göngu sumarsins inn í ánna. Þeir laxar ganga upp í ánna alla leið að Ármótum, og mögulega inn í hinn nýja árfarveg sem áin hefur fundið sér og þannig upp í Hítardal. Þetta á hins vegar eftir að koma í ljós á næstu vikum. Er það einlæg von okkar og trú að veiðimenn sem koma til veiða í Hítará muni eftir sem áður eiga þar góðar stundir og fái þar góða veiði. Það er enda eðli veiðimanna og veiðikvenna að vera bjartsýn. SVFR mun áfram vera í sambandi við Hafrannsóknarstofnun og önnur yfirvöld með hagsmuni Hítarár og Grjótá og Tálma að leiðarljósi. Þá mun SVFR einnig funda með veiðifélagi Hítarár um þá stöðu sem upp er kominn með sömu hagsmuni að leiðarljósi. Nú þurfa allir að standa saman."
Mest lesið Er meiri veiði núna í Eystri Rangá en 2013 Veiði Langá hækkaði um 30 sm í nótt Veiði Margir stórir fiskar sagðir á ferli í Varmá Veiði Veiðin komin í gang á heiðunum Veiði Opin fyrirlestur um hreindýraveiðar Veiði Elliðaárnar: 31 lax á fyrsta degi Veiði Má skjóta bleikju með haglabyssu? Veiði Fiskur í Hlíðarvatni í miklu fæði og hunsar veiðimenn Veiði Myndskeið af risalaxinum í Laxá í Kjós Veiði 48 laxa holl í Kjarrá Veiði