Tíska og hönnun

Elegant fatastíll og eigin hönnun

Auður Jónsdóttir
Auður Jónsdóttir
Auður Jónsdóttir er að læra viðskiptafræði í Háskólanum í Reykjavík. Ásamt náminu starfar hún sem meðstjórnandi hjá rafverkstæðinu Agli. Áhugasviðið er fjölbreytt en tíska, fjármálamarkaðir og stjórnun eru í miklu uppáhaldi. Í mörg ár hefur hún hannað og saumað eigin flíkur.

Röndótti jakkinn

Ég elska „sailor“ á sumrin. Það er svo elegant og gengur við svo margt. Ég fer í hann við til dæmis við rifnar gallabuxur, hvíta blússu og létta skó. Það skemmir ekkert að skella hatti á höfuðið með í góða veðrinu. Ég keypti þennan jakka í Zöru, búð sem klikkar sjaldan.

Svarti kjóllinn

Er ekki nauðsynlegt fyrir alla fataskápa að innihalda einn lítinn svartan kjól? Allavega vantaði mig slíkan og var ekki lengi að uppfylla þá kröfu og hannaði þennan kjól sem passar við nánast allt.

Leðurjakkinn

Skinnjakkinn er frá mér líka. Mér finnst hann óttalega gæjalegur og svolítill pilot-fílingur yfir honum. Hann poppaði ég upp með lítilli hauskúpu á rennilás og kraga. Hann er ekki þessi týpíski leðurjakki svo það er gaman að breyta til og slíta sig frá þessum hversdags leðurjakka.

Rauði kjóllinn

Ég held mikið upp á þessa sumardásemd! Kjóllinn rifjar upp skemmtilegar minningar um sól, sumar og brúðkaup bestu vina minna en hann hannaði ég og saumaði ég sjálf fyrir þetta ákveðna tilefni.

Veskið

Mér fannst vanta einhvern fylgihlut hérna með. Mér finnst ekkert leiðinlegt að eiga veski fyrir hvert og eitt tilefni eða dress svo ég á nokkur. Þetta er úr Friis & Company. Það er svo frískandi og sumarlegt þannig að mér fannst vel við hæfi að leyfa því að fylgja með.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×