
Ekkert verður af endurkomu Guðna Ágústssonar

Guðni staðfesti í samtali við Fréttablaðið á dögunum að formaður og varaformaður kjördæmissambandsins hefðu leitað til sín og gefið sér fullt umboð til að velta fyrir sér bæði fólki og stefnumálum.
„Nú hef ég verið að fara yfir stefnumál Framsóknarmanna í Reykjavík og ræða við margt ágætt fólk.“ Þá sagðist hann búast við að listinn í Reykjavík yrði stokkaður upp.
Nú er hins vegar ljóst að ekkert verður af því að Guðni taki þátt í að rétta við fylgi Framsóknarflokksins í borginni. Þingmenn flokksins höfðu lýst yfir stuðningi við Guðna í oddvitasæti flokksins sem enn er óráðið hver muni skipa.
Guðrún Bryndís Karlsdóttir, sem skipar annað sætið hjá Framsókn í Reykjavík, taldi að kjördæmisráð flokksins hefði reynt að brjóta reglur flokksins með því að planta Guðna í oddvitasætið. Sagðist hún velta fyrir sér hvort verið væri að bíða eftir því hvort hún myndi gufa upp. Kjördæmisráð flokksins í Reykjavík hefði met réttu átt að vinna með sér sem réttkjörin staðgengil oddvita flokksins eftir að Óskar Bergsson dró sig í hlé.
Boðað hafði verið til aukakjördæmisþings Framsóknarflokksins í Reykjavík á morgun, Sumardaginn fyrsta, klukkan 11. Þinginu hefur hins vegar verið frestað til þriðjudags í næstu viku „af óviðráðanlegum orsökum“ líkt og segir á heimsíðu flokksins í kvöld.
Tengdar fréttir

Guðni Ágústsson er orðinn KR-ingur
Formaðurinn kannast ekki við að urgur sé innan vébanda KR vegna þess að Guðni Ágústsson er aðal ræðumaður á Herrakvöldi KR-inga.

Guðni útilokar ekki framboð í Reykjavík
Kjördæmasamband Framsóknarflokksins leitar logandi ljósi að vinsælum einstaklingi til að leiða lista flokksins í borginni í vor.

Guðni undir feldi
Hart er lagt að Guðna Ágústssyni að taka að leiða framsóknarmenn í Reykjavík.

Óskar Bergsson dregur sig í hlé
Í nýrri tilkynningu kemur fram að Óskar Bergsson er hættur við að leiða Framsóknarmenn í komandi borgarstjórnarkosningum.

Vigdís segir engan vanda að vinna upp fylgi á tveimur mánuðum
Ekki er vitað hver mun leiða framsóknarmenn í borginni eftir að Óskar Bergsson sprakk á limminu.

Telur sig betri kost en Guðna Ágústsson
Guðrún Bryndís vill leiða lista Framsóknar í Reykjavík

Guðni segir Reykjavíkurflugvöll "besta og mikilvægasta“ flugvöll landsins
Guðni Ágústsson, framkvæmdastjóri samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði, segist ætla að tilkynna á sumdardaginn fyrsta hvort hann gefi kost á sér sem oddviti flokksins í Reykjavík. Hann hefur rætt þetta við Sigmund Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra og segir hann styðja sig í oddvitasætið.

Leggja fram tillögu um framboðslista Framsóknar á morgun
Framsóknarflokkurinn í Reykjavík hefur boðað er til aukakjördæmaþings á morgun fimmtudaginn 24. apríl að Suðurlandsbraut 24 og hefst þingið kl. 11.00.

Þingmaður Framsóknarflokksins styður Guðna í oddvitasætið
Guðrún Bryndís Karlsdóttir, sem skipar annað sæti listans segist tilbúin til að taka fyrsta sætið.

Guðni vildi sameina allt innanlandsflug í Keflavík
Guðni Ágústsson lýsti því yfir í maí 2007 að hann teldi réttast að innanlandsflugið flyttist til Keflavíkur og vildi hann sameina allt flug í landinu þar. Það gengur í berhögg við það sem hann segir núna en hann vill halda innanlandsfluginu í Vatnsmýri. Hann ætlar að tilkynna um framboð sitt á Reykjavíkurflugvelli á fimmtudag.

Kjördæmisráð vill Guðna fram
Fyrrverandi ráðherrann hefur fengið umboð til að kanna uppstokkun á lista og endurskoðun málefna