Lífið

Saman á ný?

Leikkonurnar eru sagðar vilja vinna saman á ný.
Leikkonurnar eru sagðar vilja vinna saman á ný.
Leikkonan Courteney Cox er sögð vera afar spennt fyrir því að gera þætti með vinkonum sínum úr Friends, þeim Jennifer Aniston og Lisu Kudrow.

Courteney er sögð vera að vinna að nýrri þáttaröð þar sem vinkonurnar færu allar með hlutverk. Vinkonurnar voru gestir í spjallþætti Jimmys Kimmel í síðasta mánuði þar sem þær töluðu um hversu gaman það hefði verið að leika saman í Friends.

Heimildarmaður Heat Magazine sagði í samtali við tímaritið að Courteney vildi gera prufuþátt þar sem þær lékju miðaldra vinkonur sem ættu það sameiginlegt að eiga erfitt með að eignast börn.

Þær eru sagðar hafa farið saman út að borða stuttu eftir þáttinn þar sem þær hafi rætt frekara samstarf og séu allar spenntar fyrir því að vinna saman aftur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×