Lífið

McKellen fékk sér Einstök White Ale á Bravó

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Ian McKellen er kominn á áttræðisaldur og hefur unnið fjölda verðlauna fyrir frammistöðu sína.
Ian McKellen er kominn á áttræðisaldur og hefur unnið fjölda verðlauna fyrir frammistöðu sína. Vísir/GettyImages
Ian McKellen, stórleikari, er staddur á landinu og samkvæmt heimildum Vísis gistir hann á íbúðarhóteli í miðbænum. McKellen er best þekktur fyrir hlutverk sitt í Lord of the Rings þríleiknum þar sem hann lék Gandalf.

McKellen tyllti sér á Bravó í gærkvöld en starfsmenn barsins ætluðu ekki að trúa því að raunverulega væri um hann að ræða. „Þetta var nú eiginlega mjög fyndið þannig séð,“ rifjar Ísar Logi Arnarsson, vaktstjóri á Bravó upp. „Það voru tveir eldri menn inni á staðnum, svona gráhærðir og örlítið úfnir. Ég var á barnum þegar það kemur upp að mér ungur drengur og segir að Gandalf sé inni á staðnum. Ég horfi yfir salinn og sé ekki sjálfan Ian McKellen heldur annan eldri mann og sannfæri drenginn um að þarna sé ekki um Gandalf að ræða. Ég sé alveg öruggur um það.“ Hann lýsir því hvernig það líði á kvöldið og það fari að kvisast út að þarna sé raunverulega um galdramanninn að ræða en Ísar trúir enn ekki sögusögnunum. „En klukkutíma síðar þá stendur hann upp. Ég horfi framan í hann og mér líður eins og ég hafi bara séð Mikka Mús eða eitthvað þegar ég átta mig á að þetta sé raunverulega hann.“

Ísar er vaktstjóri á Bravó.Mynd/Thomas Banakas
Vilja leyfa fræga fólkinu að vera í friði

McKellen gengur þá út af staðnum út í nóttina og Ísar neyddist til þess að gefa drengnum unga bjór í sárabætur. „Það var enginn að abbast upp á hann eða neitt svoleiðis. Staðurinn var í uppnámi í smá tíma.“ McKellen dvaldi á staðnum í rúma klukkustund og hlýddi á DJ-inn Mr.Silla. „Hann fékk sér Einstök White Ale, auðvitað, hann er náttúrulega Gandalf the White.“ 

Ísar tók engar myndir af leikaranum þekkta en að hans mati verður að sýna stórstjörnum virðingu sem heimsækja landið. „Þau eru að koma alla leið til Íslands þar sem þau búast við að geta verið í ró og næði. Auðvitað er gaman að einn og einn vindi sér upp að þeim og þakki fyrir sig en það er ekki í lagi að heilu hóparnir trufli.“ 

Eigandi Bravó, Jón Mýrdal, hafði sömu sögu að segja þegar Vísir náði af honum tali. „Við reynum yfirleitt að láta fræga fólkið í friði.“ 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×