Sport

Kristján Helgi með gull í Malmö, Telma Rut með silfur

Kristján Helgi og Telma Rut
Kristján Helgi og Telma Rut vísir/karatesamband Íslands
Kristján Helgi Carrasco vann til gullverðlauna á opna sænska karatemótinu, sem fór fram í gær laugardaginn 22. mars í Malmö í Svíþjóð. Telma Rut Frímannsdóttir vann silfur auk þess ungu íslensk ungmenni fjölda verðlauna á mótinu.

 Kristján Helgi vann fyrstu tvær viðureignir sínar nokkuð sannfærandi og átti að mæta Hollendingnum Nick Gerrese í úrslitum í -67kg flokki.  Nick hafði meiðst illa í undanúrslitum og gaf því úrslitabardagann við Kristján Helga sem stóð þá eftir sem sigurvegari.

Telma Rut Frímannsdóttir átti einnig góðan dag í Malmö í gær.  Hún keppti í -61kg flokki í kumite, þar sem hún sigraði fyrstu tvo andstæðinga og mætti Gittu Brundstad frá Noregi í úrslitum.  Eftir jafna og skemmtilega viðureign þá stóð sú norska uppi sem sigurvegarinn í flokkinum.

Þessi niðurstaða gefur góða fyrirheit fyrir næstu tvö erlendu verkefni sem Kristján Helgi og Telma Rut taka þátt í. Norðurlandameistaramótið í karate sem verður í Riga Lettlandi 12. apríl og Evrópumeistaramótið sem fer fram í Tampere Finnlandi 1-5. maí næstkomandi.

 

Fleiri landsliðsmenn í karate kepptu í Malmö í gær. Ólafur Engilbert Árnason keppti í flokki unglinga -68 kg og stóð sig vel.  Eftir að hafa unnið 2 viðureignir þá tapaði hann naumlega í undanúrslitum og aftur í viðureigninni um 3ja sætið, þegar mótherji hans náði stigi 2 sekúndum fyrir lok bardagans sem hafði fram að þeim tímapunkti verið jafn.

Eldri katakeppendur okkar, Heiðar Benediktsson, Kristín Magnúsdóttir og Svana Katla Þorsteinsdóttir áttu ekki eins góðan dag og kumitekeppendurnir, flest duttu þau út eftir 2.umferð.

Í yngri unglingaflokki keppti Laufey Lind Sigþórsdóttir sem vann fyrstu 2 viðureignirnar í flokki cadet (14-15 ára) en tapaði svo fyrir sigurvegaranum í 3ju umferði. Í flokki cadetta var ekki notað uppreisnarkerfi svo Laufey fékk ekki möguleika á viðureign um 3ja sætið.  Í sama flokki keppti Arna Katrín Kristinsdóttir sem vann sína fyrstu viðureign en datt svo út í 2. umferð.

 

Fyrr um morguninn var keppt í barnaflokkum þar sem unnust 2 silfur og 4 brons, þar sem Viktor Steinn Sighvatsson vann silfur í flokki 12 ára drengja og Kristrún Bára Guðjónsdóttir brons í kata 10 ára stúlkna.

 

Heildarverðlaun:

Gull, Kristján Helgi Carrasco, kumite -67kg

Silfur, Telma Rut Frímannsdóttir, kumite -61kg

Silfur, Viktor Steinn Sighvatsson, kata 12 ára drengja

Silfur, Viktor, Óttar, Guðjón, hópkata mix 12-13 ára

Brons, Kristrún Bára Guðjónsdóttir, kata 10 ára stúlkna

Brons, Þorsteinn, Snorri, Hilmar, hópkata mix 12-13 ára

Brons, Móey, Freyja, Guðbjörg, hópkata mix 12-13 ára

Brons, Daníel, Tómas, Eiríkur, hópkata mix 10-11 ára




Fleiri fréttir

Sjá meira


×