Lífið

Engin kona má stunda kynlíf með manni í sjúkrabíl

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
Lög og reglur eru mismunandi eftir fylkjum í Bandaríkjunum en tímaritið Marie Claire fer yfir skrýtnustu lögin í landinu sem gilda yfir kynlífsathafnir. Hér fyrir neðan eru nokkur þessara laga.

Í Anniston í Alabama er ólöglegt fyrir konu að borga með kynlífi ef hún tapar í billjardkeppni.

Pör sem stunda kynlíf í farartæki með sprungið dekk eru sektuð í Cottonwood í Arizona. Sektin tvöfaldast ef þau stunda kynlíf í aftursætinu.

Pör mega ekki stunda kynlíf inní kjötfrystiklefum í verslunum í Newcastle í Wyoming.

Engin kona má stunda kynlíf með manni í sjúkrabíl í Tremonton í Utah. Ef hún gerir það verður nafn hennar birt í dagblaðinu.

Í Oblong í Illinois er ólöglegt að stunda kynlíf á meðan maður er á veiðum á brúðkaupsdaginn sinn.

Í Connorsville í Wisconsin má karlmaður ekki skjóta af byssu þegar kvenkyns maki hans fær fullnægingu.

Konur mega ekki fækka fötum er þær standa fyrir framan mynd af karlmanni í Oxford í Ohio.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×