Lífið

Segja Mark Zuckerberg hafa lent í Keflavík

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Mark Zuckerberg.
Mark Zuckerberg. vísir/getty
Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook, lenti á Keflavíkurflugvelli í nótt ásamt fylgdarliði sínum. Þessu er haldið fram í frétt DV.

Samkvæmt DV var það Suðurflug sem þjónustaði Zuckerberg í nótt en hann ku hafa lent hér á einkaþotu sinni af gerðinni Gulfstream G550 um fjögurleytið í nótt.

Í frétt DV kemur fram að eiginkona Zuckerbergs, læknirinn Priscilla Chan, hafi verið með í för en þau hafa verið saman um árabil.

Samkvæmt frétt DV stoppaði Zuckerberg stutt á Keflavíkurflugvelli á leið sinni frá Bandaríkjunum til Evrópu. Þá herma heimildir blaðsins að einkaþotan hafi flogið yfir gosstöðvarnar í Holuhrauni.

Hjónin í göngutúr.vísir/getty





Fleiri fréttir

Sjá meira


×