Mirjam og sautján ára dóttir hennar fluttu inn tuttugu kíló af fíkniefnum frá Hollandi. Í tösku Mirjam fundust rúm níu kíló af amfetamíni en í tösku dóttur hennar voru tíu kíló af MDMA. Hún sagði við skýrslutöku fyrir dómi að hún hefði tekið skýrt fram við tengiliði sína að engin fíkniefni mættu vera í tösku dóttur hennar. Þegar þær mæðgur fengu töskurnar afhentar á flugvellinum hefði hún treyst því að aðeins væru fíkniefni í ferðatösku sinni og að um tvö til þrjú kíló væri að ræða.
Þegar Mirjam var sagt að það hefðu verið fíkniefni í tösku dóttur hennar líka varð hún samvinnuþýð við lögregluna. Við lögreglu og fyrir dómi nefndi hún það fólk sem flækti hana inn í málið til að byrja með. Hún hefði farið í tvær ferðir hingað til lands áður með manni að nafni Jeroen Bol en í fyrra skiptið ekki vitað að hann hefði fíkniefni með í för. Þá hefðu Nikki og Jeroen Knip beðið hana að fara í ferðina. Þau sáu um að pakka fyrir hana eiturlyfjunum og fötum auk þess sem þau lögðu út fyrir flugmiðunum.
Mirjam tók jafnframt þátt í tálbeituaðgerð sem varð til þess að seinni sakborningurinn, Atli Freyr Fjölnisson, 27 ára gamall maður, var handtekinn og ákærður. Afar sjaldgæft er að burðardýr séu samvinnuþýð við lögreglu og fáheyrt að þau nefni tengiliði sína á nafn. Í dómnum segir að það vegi henni til refsilækkunar en á móti vegi einbeittur ásetningur hennar til refsiþyngingar. Refsiramminn var því næstum fullnýttur og Mirjam dæmd í ellefu ára fangelsi.

Fyrir mína parta lít ég á að þetta sé ekki einungis á ábyrgð dómarans heldur líka ákæruvaldsins og lögreglunnar að passa ekki betur upp á að viðkomandi fái sanngjarna meðferð eftir að lögreglan hafði notið góðs af frásögn þeirra,“ segir Jóhannes. „Þetta eru lægst settu aðilarnir í málunum og það er til mikils að vinna ef þú færð þá til að vera samvinnuþýða. En það er augljóst að það borgar sig ekki ef þetta verður það sem framtíðin ber í skauti sér.“

Dómurinn er of þungur og miklu þyngri en ég hafði reiknað með,“ segir Jóhannes.
„Ef það eru uppi einhver álitamál um hvort lagaramminn sé réttur þá verðum við að endurskoða það,“ segir Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis, um refsistefnu stjórnvalda í fíkniefnamálum.

„Mér þykir það alveg einsýnt,“ segir hann. „Löggjafinn hefur tekið þá ákvörðun að refsa mjög þungt fyrir það að smygla ólöglegum vímuefnum til landsins og það er meðvituð ákvörðun og ætti ekki að koma neinum á óvart. Þetta er það sem Alþingi og að veigamiklum hluta samfélagið líka, því miður, ákvað að gera til að sporna við vímuefnaneyslu.“
Rætt var við Mirjam í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær, líkt og sjá má hér fyrir neðan.