Meistararnir úr leik eftir æsilegan oddaleik | Sjáðu sigurkörfu CP3 Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 3. maí 2015 11:18 Chris Paul skorar sigurkörfuna í nótt. Vísir/Getty
Meistarar San Antonio Spurs eru úr leik í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta eftir að hafa tapað fyrir LA Clippers í oddaleik í nótt, 111-109. Chris Paul skoraði sigurkörfu leiksins þegar ein sekúnda var eftir. Hann keyrði inn í teig og tók erfitt skot yfir Tim Duncan sem fór ofan í við gríðarlegan fögnuð heimamanna. Paul náði að hrista af sér meiðsli snemma í leiknum og skoraði 27 í leiknum, þar af átján í síðari hálfleik en þá setti hann niður fjórar afar mikilvægar þriggja stiga körfur. Tim Duncan var einnig með 27 stig og ellefu fráköst þar að auki. Hann hrósaði Paul eftir leikinn. „Þetta var gjörsamlega ótrúlegt skot. Ég veit að hann var að spila með smá meiðsli á bakinu en hann náði samt að koma sér í gegnum þetta og taka þetta skot. Við vorum tveir í honum,“ sagði Duncan en Danny Green fylgdi Paul inn í teiginn áður en Duncan steig út gegn honum. Clippers er nú komið í undanúrslit vesturdeildarinnar í aðeins fjórða skipti frá upphafi en þetta var eina rimman í fyrstu umferð úrslitakeppninnar sem réðst í oddaleik. Blake Griffin var með þrefalda tvennu fyrir Clippers í leiknum - 24 stig, þrettán fráköst og tíu stoðsendingar. Tony Parker skoraði 20 stig fyrir Spurs.
NBA Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira