Hugðust sprengja breska sendiráðið í Ósló Atli Ísleifsson skrifar 12. nóvember 2015 13:32 Krekar kom til Noregs frá Írak sem flóttamaður árið 1991 og er hann stofnandi íslamska öfgahópsins Ansar al-Islam. Vísir/EPA
Lögregla víðs vegar um álfuna hefur handtekið sautján manns í samhæfðum aðgerðum vegna gruns um að þeir tengist alþjóðlegu hryðjuverkaneti.Í frétt BBC segir að í aðgerðunum hafi sex verið handteknir á Ítalíu, fjórir í Bretlandi og þrír í Noregi. Talið er að sumir hinna handteknu hafi áður ferðast til Sýrlands eða Írak. Hryðjuverkanetið er sakað um að vinna að lausn leiðtogans, Mulla Krekar, sem nú er í haldi í Noregi. Hann hefur um árabil setið í fangelsi, þar á meðal fyrir að hafa hyllt árásarmennina sem réðust á ritstjórnarskrifstofur Charlie Hebdo í París fyrr á árinu. Ítalskir fjölmiðlar greina frá því að hinir handteknu séu grunaðir um að skipuleggja hryðjuverkaárásir í Noregi og öðrum Evrópuríkjum, þar á meðal breska sendiráðið í Ósló. Krekar kom til Noregs frá Írak sem flóttamaður árið 1991 og er hann stofnandi íslamska öfgahópsins Ansar al-Islam. Yfirvöld í Noregi hafa reynt að vísa honum úr landi frá árinu 2003 þar sem hann er talinn vera ógn við þjóðaröryggi. Norsk lög kom hins vegar í veg fyrir að mögulegt sé að framselja hann til Íraks þar sem þar gæti hann átt yfir höfði sér dauðarefsingu. Handtökur næturinnar voru framkvæmdar í Noregi, Ítalíu, Bretlandi, Finnlandi, Þýskalandi og Sviss.
Noregur Mest lesið Maður hætt kominn eftir ísbjarnarárás Innlent Nýútskrifuð kona ráðin í stað reynslumikils karls Innlent Bíllinn ekki í handbremsu við sundlaug og rann niður kletta Innlent Sagði móður ekki heila á geði og fær skömm í hattinn Innlent „Virðist vera partur af því að reka verslun á Íslandi í dag“ Innlent Óeirð á hjúkrunarheimilum vegna endalausra íþrótta á RÚV Innlent Bugaðar á bak við eldavélina að baka fyrir TikTok Innlent Háttsemi Helga nái aftur til 2017 Innlent Segja Vöku fara offari við að draga burt bíla Innlent Foreldrar og kennarar minnast ungu stúlknanna Erlent Fleiri fréttir Ísraelar í hefndaraðgerðum gegn Hezbollah í Líbanon Nokkur dauðsföll eftir að þyrla brotlenti á svínabúi Skammast sín vegna skotárásarinnar Foreldrar og kennarar minnast ungu stúlknanna Ber ekki vitni í spillingarrannsókn á eiginkonu sinni Hermenn sakaðir um að misþyrma palestínskum fanga kynferðislega Þriðja stelpan látin í Southport Fjöldamorðingi í My Lai látinn Grunar vinstriöfgamenn um græsku Þolinmæði Færeyinga gagnvart Norðurlandaráði á þrotum Um þúsund bréfberar misst fingur eða framan af fingri á fimm árum Átta enn í lífshættu eftir árásina mannskæðu í Southport Einn látinn í mótmælunum Reyna að fá Ísrael til að ráðast ekki á Beirút Úkraínumenn aðstoða uppreisnarmenn í Malí gegn Wagner-liðum Mótmæli vegna endurkjörs Venesúelaforseta Tvö börn stungin til bana í Southport Grunaður árásarmaður sautján ára gamall Skoða dómsátt í barnaníðsmáli íslensks morðingja Fjöldi barna stunginn á Norðvestur-Englandi Kynnir breytingar á hæstarétti og friðhelgi forseta Íslendingur handtekinn vegna skemmdarverka í Mexíkó Á fjórða þúsund manna glímir við mikla elda í Kaliforníu Maduro endurkjörinn í afar óeðlilegum kosningum Lést af völdum langvinnrar lungateppu og astma Óttast stigmögnun átaka við landamæri Ísrael og Líbanon Mikið undir í forsetakosningum Venesúela Ísrael hét hefndum og hæfði skotmörk í Líbanon Biður eiginkonuna afsökunar á að hafa misst giftingarhringinn í Signu Ellefu ungmenni létust í loftárás á fótboltavöll Sjá meira