Ágústa Eva myndi gefa líf sitt fyrir bjargráð forseta í Icesave Jakob Bjarnar skrifar 24. nóvember 2015 17:45 Ágústa Eva segir að með framgöngu sinni í Icesavemálinu hafi Ólafur Ragnar bjargað okkur og niðjum okkar frá ánauð og svo þakklát er leikkonan að hún myndi gefa líf sitt fyrir það sem hann gerði. Vísir
Ágústa Eva Erlendsdóttir leik- og söngkona skrifaði í morgun færslu á Facebook-vegg sinn sem valdið hefur verulegum titringi í menningarheimum. Þar lýsir hún yfir einlægri aðdáun sinni á Ólafi Ragnari Grímssyni, af svo mikilli innlifun að mörgum þykir nóg um. Reyndar virðist afstaðan til Ólafs Ragnars skipta þeim sem starfa við menningu og listir, og draga skýrar línur í þann hóp. „Ólafur Ragnar er sá maður sem við eigum samfélagið eins og við þekkjum það að þakka. Hann hefur hugrekki til að segja og gera hluti sem aðra skortir. Hann sèr stóru myndina og finnur leiðir sem aðrir sjá ekki,“ skrifar Ágústa Eva og hún er rétt að byrja: „Ég finn hvernig þakklæti mitt til hans yfir því sem hann gerði með Icesave, nær engum endi, ég myndi án þess að hugsa mig um gefa líf mitt fyrir það sem hann gerði. Hann bjargaði okkur og niðjum okkar úr ánauð. Ég vil benda fólki á að skoða hlutina í stóra samhenginu en ekki með hippagleraugum, þó að þau séu í tísku. Engum treysti ég betur til að standa fremstur okkar á tímum sem þessum og bið einlæglega um að svo megi verða.“ Meðal þeirra sem lýsa yfir velþóknun á þessum orðum Ágústu Evu með „læki“ sínu eru söngvararnir Stefán Hilmarsson, Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Gylfi Ægisson og Bo Halldorsson. En dýpra rista orð Ágústu Evu ekki í menningargeirann, ef blaðamanni Vísis leyfist að rýna í læklistann. Úr leikhúsinu eru það einungis dramatúrg Þjóðleikhússins Símon Birgisson og leikarinn og grínarinn Þorsteinn Guðmundsson sem lýsa yfir ánægju sinni. Nokkrir setja hins vegar inn athugasemdir og Snorri Már Skúlason fyrrverandi fjölmiðlamaður spyr í forundran: „Ég lít á þetta sem kaldhæðni af bestu sort.“ Kolbrún Halldórsdóttir leikstjóri skrifar: „Það hefur einhver stolist í tölvuna þína, ljúfan mín...“ Og Pálmi Gestsson leikari segir einfaldlega: „Já, sæll!“ Blaðamaðurinn Valur Grettisson telur hins vegar talsvert yfirlæti felast í ofangreindum viðbrögðum en Hugleikur Dagsson spyr á móti: „Er ekki svoldið yfirlætislegt að saka einhvern um yfirlæti?“ Þeir sem ferðast um Facebook í kvöld gerðu margt vitlausara en skoða hinar athyglisverðu umræður sem fara fram í athugasemdakerfi Ágústu Evu.Ólafur Ragnar er sá maður sem við eigum samfélagið eins og við þekkjum það að þakka. Hann hefur hugrekki til að segja og...Posted by Erlendsdóttir Ágústa Eva on 24. nóvember 2015
Mest lesið „Það munaði minnstu að þeir dræpu mig“ Innlent Bann gegn einkaþotum og þyrlum samþykkt Innlent Vaktin: Eldgos hafið nærri Grindavík Innlent Sjálfstæðisflokkurinn langstærstur Innlent „Er líf okkar ekki jafn mikils virði og þeirra í Reykjavík?“ Innlent Skipað í nýja Grindavíkurnefnd Innlent Gosið í dag bara smá leki úr kvikuganginum Innlent „Haugalygi að ég hafi ógnað einhverjum með byssu“ Innlent Neituðu að rýma: „Við viljum fá að vera í friði“ Innlent Ekið á gangandi vegfaranda Innlent Fleiri fréttir Skipað í nýja Grindavíkurnefnd Sjálfstæðisflokkurinn langstærstur Bann gegn einkaþotum og þyrlum samþykkt Sækja um leyfi fyrir Kvíslatunguvirkjun Annasamur sólarhringur hjá björgunarsveit Patreksfjarðar Gosið í dag bara smá leki úr kvikuganginum „Það munaði minnstu að þeir dræpu mig“ „Er líf okkar ekki jafn mikils virði og þeirra í Reykjavík?“ Hafnar ásökunum um byssuat og uppgefnir íbúar undir Steinafjalli „Haugalygi að ég hafi ógnað einhverjum með byssu“ Fordæmir atvikið í Grindavík Fara fram á að Mangione fái dauðarefsinguna Ekið á gangandi vegfaranda Beindi byssunni yfir höfuð björgunarsveitarmanns Neituðu að rýma: „Við viljum fá að vera í friði“ „Þessi staður er ákaflega óheppilegur“ Beita öllum brögðum til að minnka tjón ef hraunið nær bænum Grindvíkingur ógnaði björgunarsveitarfólki með skotvopni „Minni kraftur í þessu samanborið við fyrri gos“ Myndir: Eldgos ógnar Grindavík Snýst allt um að tryggja öryggi fólks Gos við bæjarmörkin: Aukafréttatími í hádeginu Ein af dekkstu sviðsmyndunum að raungerast Björgunarsveitarfólki ógnað við rýmingu Eldgosið séð úr lofti Vonast til að hefja störf í Grindavík strax á morgun Sterkari merki en fyrir síðustu eldgos Bein útsending: Ræða skýrslu fjármálastöðugleikanefndar Gestir vaktir og Bláa lónið rýmt í snatri Vaktin: Eldgos hafið nærri Grindavík Sjá meira