Menning

Leikið á stærstu flautu landsins

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Júlíana Rún og Pamela með hljóðfærin. Eins og sjá má er kontrabassaflautan engin smásmíði.
Júlíana Rún og Pamela með hljóðfærin. Eins og sjá má er kontrabassaflautan engin smásmíði.
„Við Pamela ætlum að frumflytja verk sem hafa verið samin sérstaklega fyrir dúóið okkar, með djúpu kontrabassaflautuna hennar Pamelu í huga, sem er miklu stærri en venjuleg flauta og sú eina sinnar tegundar á landinu,“ segir Júlíana Rún píanóleikari um tónleika í Sigurjónssafni á Laugarnestanga í kvöld sem hefjast klukkan 20.30.

Tónleikarnir heita In Kontra, það nafn vísar bæði í kontrabassa og ítalska orðið incontrare, sem þýðir að hittast.

Pamela segir kontrabassaflautuna magnað hljóðfæri sem hún hafi kynnst hjá kennara sínum í Zürik. En kontrabassaflauta eigi sér aðeins um tveggja áratuga sögu sem einleikshljóðfæri, því sé fremur lítið til af lögum fyrir hana.

„Mér finnst skemmtilegt að hafa getað keypt svona flautu og komið með hana heim því við við Íslendingar eigum svo frábær tónskáld og sum þeirra hafa samið tónlist fyrir þetta góða hljóðfæri. Það verður gaman að kynna hana bæði hér heima og erlendis.“

Lögin sem frumflutt verða eru eftir Oliver Kentish, Jónas Tómasson, Sigurð Sævarsson og Harald Sveinbjörnsson. Auk þeirra flytja þær stöllur verk eftir Elínu Gunnlaugsdóttur, Steingrím Þórhallsson og Mike Mover.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.