Myndaveisla: Dönsuðu gegn kynbundnu ofbeldi í Hörpu Jóhann Óli Eiðsson skrifar 13. febrúar 2015 16:06 Vel á þriðja þúsund manns dansaði í Hörpu. vísir/ernir
Rúmlega 2500 konur, karlmenn og börn risu upp gegn kynbundnu ofbeldi í dag og tóku þátt í femínískri flóðbylgju um land allt í dag af tilefni alþjóðlega viðburðinum „Milljarður rís“. „Krafturinn var ólýsanlegur, mætingin var vonum framar og stemningin ótrúleg. Það er magnað að sjá þennan fjölda fólks mæta með gleðina að vopni og dansa fyrir mannréttindum kvenna. Dagurinn var fullkominn, meira að segja sólin skein og heiðraði okkur með nærveru sinni,“ segir Hanna Eiríksdóttir starfandi framkvæmdastýra UN Women á Íslandi. Um heim allan eða í rúmlega 200 löndum tóku manneskjur af báðum kynjum á öllum aldri þátt og dönsuðu gegn ofbeldi gegn konum og stúlkum. Harpa var stútfull af dansandi fólki á öllum aldri en um 1500 manns mættu og rúmlega 1000 manns dönsuðu í Hofi Akureyri, Félagsheimilinu Herðubreið Seyðisfirði, Menntaskólanum á Ísafirði, íþróttahúsi Neskaupsstaðar og Hljómahöllinni í Reykjanesbæ. Allsstaðar mætti fólk í baráttuhug með dansinn að vopni gegn kynbundnu ofbeldi. Boðið var upp á dagskrá með óvæntum uppákomum í Hörpu. Saga Garðarsdóttir, leikkona var kynnir og leiddi fjöldann í dansíókí, DJ Margeir náði upp þvílíkri stemningu af sinni alkunnu snilld auk þess sem Daníel Ágúst steig á stokk ásamt söngkonunni Ásdísi Maríu. Konfettí-bombur kórónuðu svo partýið í lokalaginu og baráttudansarar gengu skælbrosandi inn í helgina. Ernir Eyjólfsson, ljósmyndari Vísis, var á staðnum og fangaði stemninguna.vísir/ernirvísir/ernirvísir/ernirvísir/ernirvísir/ernirvísir/ernirvísir/ernirvísir/ernirvísir/ernirvísir/ernirvísir/ernirvísir/ernirvísir/ernirvísir/ernirvísir/ernirvísir/ernirvísir/ernirvísir/ernirvísir/ernirvísir/ernirvísir/ernirvísir/ernirvísir/ernirvísir/ernir
Tengdar fréttir Milljarður rís í Hörpu Öllum landsmönnum er boðið að dansa gegn kynbundnu ofbeldi í Hörpu í hádeginu. 13. febrúar 2015 11:45 Byltingarmenn dansa um heiminn Milljónir manna um allan heim dansa í dag gegn kynbundnu ofbeldi. 13. febrúar 2015 08:00 Mest lesið „Ekki þurrt auga í salnum“ Lífið Lén skráð á laugardag ekki framboðslén Lífið Nærfatamódelin sneru aftur eftir sex ára hlé Tíska og hönnun Þjóðhátíðarstemning á árshátíð Sýnar Lífið Man ekki eftir öðru eins: Aldrei séð jafn marga falla í yfirlið yfir einni mynd Bíó og sjónvarp Verður þér skipt út fyrir kynlífstæki? Lífið „Bullandi stífir í því að halda uppi þessu afneitunarhagkerfi sem við búum í“ Lífið Krúttlegasti innbrotsþjófur landsins Lífið „Lífsstíllinn er að drepa okkur“ Lífið Lá beinast við að gera mynd um Laugavegshlaupið Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir „Bullandi stífir í því að halda uppi þessu afneitunarhagkerfi sem við búum í“ „Ekki þurrt auga í salnum“ Krúttlegasti innbrotsþjófur landsins Lén skráð á laugardag ekki framboðslén Verður þér skipt út fyrir kynlífstæki? Þjóðhátíðarstemning á árshátíð Sýnar Orðið það sama og þekkt fataverslun í miðbæ Reykjavíkur Hlutverkið það erfiðasta hingað til Glamúr og glæsileiki í opnun hjá Lovísu DIMMA var flott en einhæf Almenningur um stjórnarslit: „Þetta var komið út í smá rugl“ Sjarmerandi íbúð listafólks í miðbænum Pískur sem þróaðist í hættulegustu samsæriskenningu síðari tíma Sungu bakraddir fyrir Heru og eru nú byrjuð saman Fylgdist með Pétri Jóhanni byggja útieldhús Dóttir Ingós og Alexöndru komin með nafn „Lífsstíllinn er að drepa okkur“ Stjörnulífið: Kóngar, drottningar og stjörnur í útlöndum Ótrúleg tilviljun er Stefán brenndi fánann Hvað eru plötusnúðarnir að hlusta á? „Ég nenni ekkert að hafa eitthvað að sanna“ „Leiðangurinn verður kvennaleiðangur að öllu leyti“ Krakkatían: Óveður, flugvélar og kirkjur Hlaupa Bleiku slaufuna í sólarhring Mary drottning hafi undrast umræðu um brúna skó Björns Laufey á lista yfir áhrifamestu áhrifavaldana Fékk ekki atvinnuviðtöl vegna kínverska nafnsins Höllu fylgt um Kaupmannahöfn: „Er hún ekki vinsæl á Íslandi?“ Fréttatía vikunnar: Halla Tómasdóttir, óveður og tölur Glæsihús umvafið ósnortnu hrauni Sjá meira
Milljarður rís í Hörpu Öllum landsmönnum er boðið að dansa gegn kynbundnu ofbeldi í Hörpu í hádeginu. 13. febrúar 2015 11:45
Byltingarmenn dansa um heiminn Milljónir manna um allan heim dansa í dag gegn kynbundnu ofbeldi. 13. febrúar 2015 08:00