Lífið

Playboy segir Katrínu Tönju eiga að vera fyrsti kostur hvers manns ef uppvakningar taka yfir

Birgir Olgeirsson skrifar
Katrín Tanja Davíðsdóttir.
Katrín Tanja Davíðsdóttir. mynd/crossfit games
Katrín Tanja Davíðsdóttir, sem sigraði nýverið á heimsleikunum í Crossfit, er til umfjöllunar á vef tímaritsins Playboy. Á vefnum er Katrín Tanja sögð búa yfir miklum styrk og geta gert allt, hlaupið, synt, klifrað og staðið á annarri hendi.

„Hún lyfti eins og Hulk á meðan hún lítur út eins og leikfélagi. Það eru milljón ástæður fyrir því að hún ætti að vera fyrsti kostur hvers manns ef uppvakningar taka yfir heiminn,“ segir á vef Playboy um Katrínu Tönju en þar eru birtar myndir og myndbönd af Instagram-síðu Katrínar.

Katrín Tanja vann heimsleikana í Crossfit á dramatískan hátt og fékk að launum tæplega 38 milljónir króna.   


Tengdar fréttir

Ég er stolt af vöðvunum

Katrín Tanja Davíðsdóttir er nýkrýndur heimsmeistari í crossfit. Við tekur annasamur tími, hún mun ferðast víða og verða þekktara nafn. Hún ætlar að nýta tækifærin sem bjóðast og hana dreymir um að verða íþróttafréttamaður eða leikkona.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×