Lífið

Bad Boys 3 og 4 á leiðinni og endurgerð af Jumanji

Stefán Árni Pálsson skrifar
Bad Boys og Jumanji voru gríðarlega vinsælar myndir.
Bad Boys og Jumanji voru gríðarlega vinsælar myndir. vísir
Sony hefur gefið út útgáfudaga fyrir 16 nýjar kvikmyndir og má þar finna tvær nýjar Bad Boys myndir og síðan má sjá að fyrirtækið hyggst endurgera barnamyndina Jumanji.

Bad Boys 3 mun koma út í febrúar 2017 og Bad Boys 4 í júlí 2019. Will Smith og Martin Lawrence fóru með aðalhlutverkin í fyrstu tveimur myndunum en óljóst er hvort þeir taki þátt í næstu tveimur.

Jumanji endurgerðin kemur út árið 2016 en Robin Williams fór með aðalhlutverkið í myndinni sem kom út árið 1995. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×