Lífið

Ákvað að opna ekki tölvuna í ferðalagi

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
 "Stundum fer ég í göngutúra með bókina mína og skrifa niður það sem ég sé,“ segir Unnur Hlíf.
"Stundum fer ég í göngutúra með bókina mína og skrifa niður það sem ég sé,“ segir Unnur Hlíf. Fréttablaðið/Gva
Í hvaða skóla ertu, Unnur Hlíf, og hvað þykir þér skemmtilegast að læra?

 „Vatnsendaskóli er minn skóli og tungumál eru algjörlega mín sterka hlið, mér finnst langskemmtilegast í öllum tungumálatímunum.“



Er langt síðan þú byrjaðir að yrkja? „Ég hef ort svo lengi sem ég man eftir mér. Ég fann mjög skemmtilegt ljóð um daginn eftir mig sem ég orti um himininn þegar ég var fimm ára, mamma sagði mér reyndar að það væri nokkurs konar afbrigði af texta við lag sem ég lærði þá í leikskólanum.“

Sestu niður með blað og blýant þegar þú yrkir eða koma ljóðin til þín hvar sem er? „Ljóðin eru mjög gjörn á að koma til mín þegar ég er alveg að sofna. Stundum fer ég út í göngutúra með bókina mína og skrifa niður það sem ég sé.

Sum ljóð sem ég yrki eru tengd verkefnum í skólanum og mörg eru sprottin af persónulegri reynslu. Þannig að það má segja að ég skrifi eiginlega hvar sem er og á hvaða tíma sem er. Síðan skrifa ég líka sögur og lagatexta og sem jafnvel lög.“

Veltir þú fyrir þér bragarháttum? „Ég prófaði einhvern tímann að skrifa ljóð með stuðlum og höfuðstöfum sem átti að vera fjórar línur en ég komst ekki lengra en í þriðju, þá var ég stopp. Ég legg aftur á móti upp úr hrynjandinni í ljóðunum, að textinn flæði vel.“

Lestu mikið og þá hvernig bækur? „Ég elska að lesa og mér finnst það ótrúlega gaman en ég var miklu duglegri að lesa þegar ég var yngri. Mér finnst skemmtilegast að lesa um skáldaðan raunveruleika, ef svo má komast að orði, sem sagt skáldsögur sem gætu átt sér stað í raunveruleikanum.

 Í augnablikinu er ég að lesa Töfradísina, sem er að vísu ævintýrabók og síðasta bókin í röðinni um gullgerðarmanninn Nicholas Flamel.“

Hver eru helstu áhugamálin? „Listir, tónlist, píanó, að lesa og skrifa, mér finnst líka mjög gaman að dansa heima í stofu og syngja hástöfum í sturtunni.“



Hefurðu farið í eftirminnilegt ferðalag? „Ég fór til Noregs og Danmerkur í sömu ferðinni fyrir nokkrum árum og ákvað að fara ekkert í tölvuna á meðan ég var þar. Það er ansi eftirminnilegt þar sem ég naut ferðarinnar miklu betur.“



Hvað dreymir þig helst um að verða? „Ég ætla mér að verða leikkona, rithöfundur og skáld. Ég stefni á leiklistarsvið í framhaldsskóla en gæti líka hugsað mér að læra leikstjórn í framtíðinni.“



Auðlindir alheimsins

Tveir meingallaðir túnfiskar

sem koma hvor úr sinni dós

sameinast á miðri leið

og verða sem eitt

að undurfallegri rós






Fleiri fréttir

Sjá meira


×