Kveikt í byggingu sem ætluð var hælisleitendum í Þýskalandi Atli ísleifsson skrifar 25. ágúst 2015 11:41 Ljóst þykir að um íkveikju var að ræða. Vísir/AFP
Kveikt var í íþróttasal í þýska bænum Nauen í nótt en honum var ætlað að hýsa hælisleitendur. Ráðist hefur verið á fjölda bygginga fyrir hælisleitendur í Þýskalandi að undanförnu. Salnum var tímabundið ætlað að hýsa um 130 hælisleitendur sem hafast nú við í tjaldbúðum í bænum Eisenhüttenstadt, skammt frá pólsku landamærunum. Nauen er nokkra tugi kílómetra vestur af höfuðborginni Berlín og hafa mótmæli gegn komu hælisleitendanna verið nokkuð tíð í bænum í sumar. Ljóst þykir að um íkveikju sé að ræða.Mótmæli nýnasista Um helgina beindist kastljósið að mótmælum nýnasista í bænum Heidenau í Saxlandi þar sem til harðra átaka kom milli mótmælenda og lögreglu. Sigmar Gabriel, varakanslari Þýskalands, sótti Heidenau heim í gær þar sem hann kallaði mótmælendurna „pakk“. Angela Merkel kanslari sagði jafnframt mótmælin vera „skammarleg“ og sagði það sérstaklega truflandi að sjá að barnafjölskyldur hefðu tekið þátt í þeim.800 þúsund hælisleitendur Merkel og Francois Hollande Frakklandsforseti funduðu í gær í Berlín til að ræða flóttamannavanda álfunnar og sögðust þau sammála um að aðildarríki Evrópu þyrftu öll að hjálpast að til að leysa vandann. Í síðustu viku var tilkynnt að Þýskaland gerði ráð fyrir að taka á móti 800 þúsund hælisleitendum á þessu ári, samanborið við 250 þúsund á síðasta ári.
Mest lesið Maður hætt kominn eftir ísbjarnarárás Innlent Nýútskrifuð kona ráðin í stað reynslumikils karls Innlent Bíllinn ekki í handbremsu við sundlaug og rann niður kletta Innlent Sagði móður ekki heila á geði og fær skömm í hattinn Innlent „Virðist vera partur af því að reka verslun á Íslandi í dag“ Innlent Óeirð á hjúkrunarheimilum vegna endalausra íþrótta á RÚV Innlent Bugaðar á bak við eldavélina að baka fyrir TikTok Innlent Háttsemi Helga nái aftur til 2017 Innlent Segja Vöku fara offari við að draga burt bíla Innlent Foreldrar og kennarar minnast ungu stúlknanna Erlent Fleiri fréttir Ísraelar í hefndaraðgerðum gegn Hezbollah í Líbanon Nokkur dauðsföll eftir að þyrla brotlenti á svínabúi Skammast sín vegna skotárásarinnar Foreldrar og kennarar minnast ungu stúlknanna Ber ekki vitni í spillingarrannsókn á eiginkonu sinni Hermenn sakaðir um að misþyrma palestínskum fanga kynferðislega Þriðja stelpan látin í Southport Fjöldamorðingi í My Lai látinn Grunar vinstriöfgamenn um græsku Þolinmæði Færeyinga gagnvart Norðurlandaráði á þrotum Um þúsund bréfberar misst fingur eða framan af fingri á fimm árum Átta enn í lífshættu eftir árásina mannskæðu í Southport Einn látinn í mótmælunum Reyna að fá Ísrael til að ráðast ekki á Beirút Úkraínumenn aðstoða uppreisnarmenn í Malí gegn Wagner-liðum Mótmæli vegna endurkjörs Venesúelaforseta Tvö börn stungin til bana í Southport Grunaður árásarmaður sautján ára gamall Skoða dómsátt í barnaníðsmáli íslensks morðingja Fjöldi barna stunginn á Norðvestur-Englandi Kynnir breytingar á hæstarétti og friðhelgi forseta Íslendingur handtekinn vegna skemmdarverka í Mexíkó Á fjórða þúsund manna glímir við mikla elda í Kaliforníu Maduro endurkjörinn í afar óeðlilegum kosningum Lést af völdum langvinnrar lungateppu og astma Óttast stigmögnun átaka við landamæri Ísrael og Líbanon Mikið undir í forsetakosningum Venesúela Ísrael hét hefndum og hæfði skotmörk í Líbanon Biður eiginkonuna afsökunar á að hafa misst giftingarhringinn í Signu Ellefu ungmenni létust í loftárás á fótboltavöll Sjá meira