Lífið

Selur bókamerki og lætur gott af sér leiða

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Ragnhildur Katla hefur alltaf haft gaman af því að föndra. Bókamerkin eru í hinum ýmsu myndum, meðal annars ís, ugla, refur og flugdreki.
Ragnhildur Katla hefur alltaf haft gaman af því að föndra. Bókamerkin eru í hinum ýmsu myndum, meðal annars ís, ugla, refur og flugdreki. Mynd/Aðsend
„Það er ekkert sjálfsagt að fá allt upp í hendurnar eins og mörg börn á Íslandi þannig að mér fannst bara gott að geta gert eitthvað,“ segir Ragnhildur Katla Jónsdóttir.

Ragnhildur er sextán ára gömul og hefur upp á síðkastið verið að gera bókamerki sem hún mun selja á Fiskideginum mikla sem fer fram á Dalvík um helgina og mun allur ágóði af sölunni renna til UNICEF.

Hún segist alltaf hafa haft gaman af því að föndra og meðal annars gert ýmiss konar tækifæriskort sem hún selur á Facebook.com/Rokkrós. „Svo sá ég hugmynd að svona bókamerkjum og fannst þau svo sæt að ég ákvað að prófa að búa þau til. Þetta er einmitt svona stærð sem er gott að selja, ekkert of dýrt og er bara svo sætt eitthvað,“ segir hún og bætir við: „Svo datt mér í hug að reyna að hjálpa og gera eitthvert gagn. Það er mjög takmarkað hvað 16 ára stelpa getur gert til að hjálpa heiminum en mig langaði samt til að gera eitthvað.“ Bókamerkin eru gerð úr pappír og koma meðal annars í formi uglu, flugdreka og refs.

Ragnhildur komst í kynni við UNICEF þegar barnahjálparsamtökin sóttu Dalvík heim á dögunum og ákvað í framhaldi af því að athuga hvort hún gæti ekki lagt eitthvað til samtakana og ákvað í kjölfarið að hana langaði til þess að láta gott af sér leiða.

Hún hlakkar til að standa vaktina og vonast til að salan muni ganga vel. „Ég vona að þetta gangi svo vel að ég þurfi að gera fleiri. Ég vona að ég geti safnað heilum hellingi fyrir börnin úti í heimi.“


Tengdar fréttir

Rafstöðin bræddi úrsér

Kvikmyndin Þrestir, sem leikstýrt er af Rúnari Rúnarssyni, verður í aðalkeppni alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í San Sebastián sem fer fram á Spáni í september.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×