Fótbolti

Tveir sigrar í röð hjá Arnóri Ingva og félögum

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Arnór Ingvi Traustason í leik með IFK.
Arnór Ingvi Traustason í leik með IFK. vísir/ifknorrkoping.se
IFK Norrköping vann annan leikinn í röð í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag þegar liðið hafði sigur á Häcken á útivelli, 2-0.

Arnór Ingvi Traustason, sem skoraði tvö mörk í síðasta leik, spilaði allan leikinn fyrir Norrköping sem er í sjöunda sæti deildarinnar með tíu stig eftir sigurinn.

Emir Kujovic skoraði fyrra markið á 34. mínútu og Rawez Lawan það síðara á fyrstu mínútu í uppbótartíma.

Gunnar Heiðar Þorvaldsson var í byrjunarliði Häcken á móti sínum gömlu félögum en tókst ekki að skora. Hann fór af velli á 64. mínútu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×