Lífið

Þriðja sería House of Cards birtist fyrir mistök á Netflix

Atli Ísleifsson skrifar
Kevin Spacey fer með aðalhlutverkið í þáttaröðinni House of Cards.
Kevin Spacey fer með aðalhlutverkið í þáttaröðinni House of Cards.
Allir þættir í þriðju þáttaröð House of Cards voru fyrir mistök aðgengilegir á Netflix fyrr í kvöld.

Upphaflega var búið að tilkynna að þættirnir tíu yrðu ekki birtir fyrr en 27. febrúar næstkomandi og brá því mörgum notendum síðunnar í brún þegar þeir gátu skyndilega nálgast þættina.

Á vef CNBS segir að um tæknileg mistök hafi verið að ræða og verða aðdáendur þáttanna því að bíða rólegir í rúmar tvær vikur til viðbótar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×