Lífið

Ný bók um heilbrigði

Baywatch-leikkonan fyrrverandi er gift Rick Salomon.
Baywatch-leikkonan fyrrverandi er gift Rick Salomon. Nordicphotos/Getty
Pamela Anderson gefur á næstunni út bók sem nefnist Connect and Transform. Þar gefur hún lesendum sínum góð ráð varðandi heilbrigðan lífsstíl.

Baywatch-leikkonan fyrrverandi setti á Facebook-síðu sína tilkynningu um að bókin væri væntanleg, ásamt svarthvítri mynd af sjálfri sér. Ellefu ár eru liðin síðan Anderson gaf út bókina Star. Hún fjallaði um leið hennar upp á stjörnuhimininn.

Árið eftir gaf hún út Star Struck, sem fjallaði um líf hennar og fyrrverandi eiginmanns, Tommy Lee, og erfiðleikana sem fylgja stjörnulíferninu.

Hin 47 ára Anderson er núna gift atvinnupókerspilaranum Rick Salomon og hefur lengi barist fyrir réttindum dýra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×