Hvenær verður stelpa kona? 11. janúar 2015 12:00 Leikhópurinn Konubörnin sex sem sömdu leikritið og leika í því. Frá vinstri: Eygló (efri röð), Þórdís (neðri röð), Ásthildur, Ebba, Sigurlaug Sara og Þórey. vísir/stefán
Framtíðardeild Gaflaraleikhússins frumsýnir Konubörn á miðvikudag. Núna um helgina verður aftur á móti fyrsta rennsli með áhorfendum og því skiljanlega kominn frumsýningarfiðringur í mannskapinn. „Ég er með hlýjan tilhlökkunarfiðring,“ segir Björk Jakobsdóttir, leikstjóri Konubarna. „Oft er ég með verkkvíða og stresshnút svona skömmu fyrir frumsýningu en ég hlakka bara til núna.“ Leikritið er samið af sex ungum konum, á aldrinum 20-23 ára, sem einnig leika í verkinu. Þær velta fyrir sér hvenær maður verði eiginlega fullorðinn. Hvort það sé þegar maður hætti að borga barnagjald í sund eða þegar maður fermist eða þegar maður hættir að skammast sín fyrir að kaupa túrtappa? Eða jafnvel þegar maður fer að nota orð eins og meðvirkni og öll boð eru með sushi og kampavíni? „Þær leituðu til okkar með þessa hugmynd og svo unnum við verkið saman,“ segir Björk. „Það er svo miklu skemmtilegra þegar leikrit fyrir ungt fólk eru skrifuð af ungu fólki og leikin af ungu fólki í staðinn fyrir forvarnarleikrit þar sem fimmtug kona leikur ungling. Leikritið er um konubörn, þær eru ekki lengur stelpur en samt ekki orðnar konur, og fjallar um það sem brennur helst á þeim í dag – svo sem útlitsdýrkun, femínisma og andstæðurnar í lífinu. Þetta eru flottar ungar konur, frábærar leikkonur og svo sterkar og sjálfstæðar. Þær eru af flottri, sterkri stelpukynslóð.“
Mest lesið Sjóðheitir og einhleypir inn í haustið Lífið Þreyttur á stefnumótaöppum: „Hvernig fer ég að því að kynnast fólki?“ Lífið Sjóðheitar og einhleypar inn í haustið Lífið Ragnhildur og Hanna Katrín kveðja Búseta Lífið Hafi enn verið hreinn sveinn Lífið Tíu ár af ást: „Sennilega ekki auðvelt með mér“ Lífið Henti listaverkinu í ruslið Menning Logi Geirs og Ólafur Ragnar léttir í London Lífið Harry og Meghan séu ekki að skilja Lífið Gullmoli í Giljalandi Lífið Fleiri fréttir Sjóðheitir og einhleypir inn í haustið Þreyttur á stefnumótaöppum: „Hvernig fer ég að því að kynnast fólki?“ Gullmoli í Giljalandi Hafi enn verið hreinn sveinn Logi Geirs og Ólafur Ragnar léttir í London Ragnhildur og Hanna Katrín kveðja Búseta Tíu ár af ást: „Sennilega ekki auðvelt með mér“ Harry og Meghan séu ekki að skilja Galið að fræðsla um snípinn sé af skornum skammti Móðir Whitney Houston látin Stofnar eigin útgáfu og byrjar í ruslinu Skilnaður handan við hornið hjá Kanye og Biöncu Vann til verðlauna fyrir götubitann Bergrún Íris og Kolbrún keyptu í Hafnarfirði Fylgst með tímaskeiði í lífi konu sem greinist með krabbamein Gátu ekki talað saman fyrir syngjandi þjónum „Fólk í kringum þessa einstaklinga er á nálum“ Fanney Dóra og Aron gáfu syninum nafn Náði að sættast við bróður sinn fyrir andlátið Stjörnulífið: Skvísustælar við bakkann og áminning um óöryggi Eins og þruma úr heiðskíru lofti Sláturgerð, Sherry og súkkulaði á Hellu Myndaveisla: Eliza Reid og Ásdís Spanó létu sig ekki vanta í Núllið Covidsmitaður Al Pacino var nær dauða en lífi Dolly gefur 135 milljónir vegna Helenu Með húsaflutninga á heilanum Krakkatían: Ber, forsetar og prinsessur Sigmundur og hvolpurinn gleðjast yfir fylgi Miðflokksins Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til „Ég var heppinn. En ekki hann“ Sjá meira