Innlent

Stjórnvöld axli ábyrgð

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
vísir/stefán
Stjórn BSRB mótmælir harðlega lagasetningu á verkfallsaðgerðir BHM og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Telur stjórnin lagasetninguna vega að samningsrétti opinberra starfsmanna og veikja samningsstöðu félaganna til muna.

Þetta kemur fram í ályktun frá BSRB þar sem stjórnin hvetur stjórnvöld til að „axla ábyrgð á stöðunni og koma með raunhæfar lausnir að samningaborðinu í stað þess að bera fyrir sig ákvæði í samningum á almennum markaði.“ Samninganefnd ríkisins hafi undanfarnar vikur talið sig bundna af þessum ákvæðum en að sú afstaða hafi skert samningsfrelsi félaganna tveggja. Þá hafi hún fært kjarasamningsviðræður fjær þeirri norrænu aðferðarfræði við gerð samninga sem ríkið hafi lagt mikla áherslu á að hér verði tekin upp.

„Forsenda þess að kjaradeilur leysist á farsælan hátt er að samið sé um niðurstöðuna á jafnréttisgrundvelli við samningaborðið,“ segir í ályktuninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×