Erlent

Umsátursástand í Dallas

Mikill viðbúnaður er í Dallas þessa stundina.
Mikill viðbúnaður er í Dallas þessa stundina. vísir/ap
Umsátursástand ríkir nú í borginni Dallas í Texas í Bandaríkjunum eftir að til skotbardaga kom milli lögreglu og óþekktra byssumanna. Mennirnir eru taldir hafa komið fyrir fjölmörgum sprengjum við lögreglustöð í borginni og hefur stöðin verið rýmd og sprengjusveit kölluð á staðinn.

Lögreglan náði að króa mennina af við veitingastað en talið er um sé að ræða fjóra menn. Lögreglan í Dallas segist hafa upplýsingar um einn þeirra en sá hefur áður verið handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð og morðhótanir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×