Peran og Bö upp á stjörnuhimin í gegnum Snapchat Kjartan Atli Kjartansson skrifar 11. ágúst 2015 09:00 Magnús Valur Böðvarsson og Magnús Guðmundsson eru léttir í lundu, með mikinn húmor fyrir sjálfum sér og lífinu í heild sinni. Vísir/GVA
Segja má að Maggarnir tveir, þeir Magnús Valur Böðvarsson og Magnús Guðmundsson, hafi skotist upp á stjörnuhimininn í gegnum snjallsímaforritið Snapchat í sumar. Sá fyrrnefndi er yfirleitt kallaður Maggi Bö eða Bö-maskínan, en sá síðarnefndi gengur undir nafninu Maggi Peran. Félagarnir slógu báðir eftirminnilega í gegn þegar þeir tóku yfir Snapchat-reikning vefsíðunnar Fótbolti.net og segir ritstjóri hennar að þeir hafi fengið fólk sem hafði ekki endilega áhuga á knattspyrnu til að fylgjast með Snapchat-reikningi síðunnar.Peran og Bö kunna að gleðja fólk.Vísir/GVAPeran með ádeilu Maggi Peran er Breiðhyltingur í húð og hár, grjótharður stuðningsmaður Leiknis og annálaður stuðbolti. „Þetta er búið að vera mjög fyndið að fylgjast með þessari öldu viðbragða. Maður gerði sér ekki grein fyrir því að þetta myndi hafa þessi áhrif,“ segir hann íhugull og bætir því við að viðbrögðin hafi komið sér á óvart. Peran segist hreinlega hafa suðað í aðstandendum Fótbolti.net og beðið þá um að leyfa sér að stýra Snapchat-reikningi síðunnar. „Vinur minn, Friðgeir Bergsteinsson, sem er grjótharður KR-ingur, fékk þann heiður að stýra reikningum. Ég hafði samband við þá á Fótbolti.net og vældi mig inn.“ Peran hreinlega sló í gegn eftir að hafa stýrt reikningi síðunnar í einn sólarhring. Fjölmiðlar fjölluðu um hann og var mikil umræða um Breiðhyltinginn glaðbeitta á samfélagsmiðlum. „Upphaflega ætlaði ég bara að svara Friðgeiri vini mínum. En þegar ég tók eftir viðbrögðunum hélt ég áfram. Ég hef svolítið verið að vinna með það að vera á grensunni, þetta „siðlausa“ ef svo má segja.“ Snöppin hans Magga eru ádeila að hans sögn. „Þetta er klár ádeila á þessa staðalímynd sem fólk hefur um Breiðhyltinga, en við sem erum í Breiðholtinu vitum að er ekki sönn.“Hundruð vinabeiðna Maggi Bö ólst upp á Álftanesi en hefur lengi verið tengdur knattspyrnuliði HK. Hann er vallarstjóri á Kópavogsvelli og þekktur fyrir að vera ávallt léttur í lundu. Hann stýrði Snapchat-reikningi Fótbolti.net í einn sólarhring yfir Þjóðhátíð. Þar kruði Bö-maskínan málin á sinn hátt og lýsti stemningunni á hátíðinni vel og vandlega. Í kjölfarið rigndi inn vinabeiðnum á hans eigin Snapchat-reikning. „Vinafjöldinn í forritinu hefur tvö- eða þrefaldast. Vinabeiðnirnar eru taldar í hundruðum,“ útskýrir Magnús Valur og heldur áfram: „Aðstandendur Fótbolti.net höfðu samband við mig á föstudagskvöldinu. Ég þekki þessa stráka og þeir höfðu verið að fylgjast með mér á mínum eigin Snapchat-reikningi. Þeir vildu endilega að ég tæki yfir reikning síðunnar, sem ég og gerði.“ Og viðbrögðin létu ekki á sér standa. „Nei, þetta var svolítið fyndið. Það var fullt af fólki á Þjóðhátíð sem var greinilega að fylgjast með og kom upp að mér á meðan hátíðinni stóð. Ýmist til að hrósa mér eða til að vera með í einhverjum snöppum.“ Vinnufélagar Magga Bö hafa einnig nýtt skopskyn hans á sínum Snapchat-reikningum. „Einn vinnufélagi minn er með sérstakan lið sem heitir „Bö dagsins“. Þá birtir hann snapp af mér, sem er nú yfirleitt leikið. En vinir hans eru mjög hrifnir af þessu og kvarta í honum ef við hittumst ekki í vinnunni til að taka upp eitthvað skemmtilegt.“Hér má sjá þá félaga slá á létta strengiVísir/GVAHafa húmor fyrir sjálfum sér Nafnarnir hafa báðir mikinn húmor fyrir sjálfum sér; í raun segja þeir það lykilinn að því að vera skemmtilegur á Snapchat. „Maður verður að vera léttur og má ekki taka sig of alvarlega,“ útskýrir Peran. Bö-maskínan segir þó mikilvægt að ganga ekki of langt í gríninu. „Maður þarf að hafa allt innan skynsamlegra marka, en auðvitað þarf að hafa gaman.“ Peran er nú á leið til Hollands og mun fylgja knattspyrnulandsliði Íslands eftir í einum mikilvægasta leik í manna minnum. Tilgangur ferðarinnar er einfaldur: Hann mun birta myndir og myndbönd af henni í gegnum Snapchat. „Ég kallaði eftir því að fá að fara í þessa ferð til þess að snappa úr henni og nokkur fyrirtæki höfðu samband við mig. Ég ákvað að taka boði Nova, enda er það líklega stærsti Snapchat-reikningur landsins.“ Hann er nú þegar farinn að undirbúa sig og reyna að sjá fyrir sér skemmtileg snöpp. „Já, það er nefnilega komin svolítil pressa á mann, því ég er ekki fyndinn að eðlisfari,“ segir Peran og hlær. Hægt er að finna þá félaga á Snapchat, Maggi Bö er með reikninginn Magnusvalue og Maggi Peran kallar sig einfaldlega Maggiperan í forritinu. Þeir setja þó þann fyrirvara að þeir samþykkja ekki allar vinabeiðnir.Hafa aukið vinsældir snappsins og fært það víðar Elvar Geir Magnússon er ritstjóri vefsíðunnar Fótbolti.net. Eins og á við um mörg önnur fyrirtæki, var ákveðið að stofna Snapchat-reikning í nafni síðunnar. „Maggi Peran og Maggi Bö hafa klárlega aukið vinsældir snappsins okkar. Við finnum fyrir meiri áhuga þeirra sem eru kannski ekki endilega annálaðir knattspyrnuáhugamenn. Við finnum fyrir mikilli umræðu um þessa tvo snillinga og fólk þrýstir á okkur að fá meira af þeim,“ útskýrir Elvar Geir og bætir við: „Þeir hafa komið með alveg nýja hlið á snappið hjá okkur. Áður var mikið bara verið að birta myndir og myndbönd af undirbúningi fyrir knattspyrnuleiki og þess háttar. En þeir hafa sýnt frá öðrum kimum lífsins. Maður tekur líka eftir því að fólk er að taka myndir af þeim félögum þegar það hittir þá á förnum vegi, enda eftirminnilegir og skemtilegir menn.“
Mest lesið Skilnaður handan við hornið hjá Kanye og Biöncu Lífið Tíu ár af ást: „Sennilega ekki auðvelt með mér“ Lífið Kemur frá Sýrlandi og syngur á íslensku Tónlist Stofnar eigin útgáfu og byrjar í ruslinu Lífið Galið að fræðsla um snípinn sé af skornum skammti Lífið Harry og Meghan séu ekki að skilja Lífið „Fólk í kringum þessa einstaklinga er á nálum“ Lífið Kim vandræðaleg á tónleikum með nýrri eiginkonu Kanye Lífið Bergrún Íris og Kolbrún keyptu í Hafnarfirði Lífið Móðir Whitney Houston látin Lífið Fleiri fréttir Tíu ár af ást: „Sennilega ekki auðvelt með mér“ Harry og Meghan séu ekki að skilja Galið að fræðsla um snípinn sé af skornum skammti Móðir Whitney Houston látin Stofnar eigin útgáfu og byrjar í ruslinu Skilnaður handan við hornið hjá Kanye og Biöncu Vann til verðlauna fyrir götubitann Bergrún Íris og Kolbrún keyptu í Hafnarfirði Fylgst með tímaskeiði í lífi konu sem greinist með krabbamein Gátu ekki talað saman fyrir syngjandi þjónum „Fólk í kringum þessa einstaklinga er á nálum“ Fanney Dóra og Aron gáfu syninum nafn Náði að sættast við bróður sinn fyrir andlátið Stjörnulífið: Skvísustælar við bakkann og áminning um óöryggi Eins og þruma úr heiðskíru lofti Sláturgerð, Sherry og súkkulaði á Hellu Myndaveisla: Eliza Reid og Ásdís Spanó létu sig ekki vanta í Núllið Covidsmitaður Al Pacino var nær dauða en lífi Dolly gefur 135 milljónir vegna Helenu Með húsaflutninga á heilanum Krakkatían: Ber, forsetar og prinsessur Sigmundur og hvolpurinn gleðjast yfir fylgi Miðflokksins Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til „Ég var heppinn. En ekki hann“ „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Gómsætar haustkökur að hætti Elenoru „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Fréttatía vikunnar: Körfubolti, laxaastmi og stýrivextir Áslaug Arna fór í meðferð til að vinna bug á köngulóafælni Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Sjá meira