Helgi Már: Við ætlum að vinna leiki hérna
Íslenska liðið tapaði með sjö stigum á móti Ítölum í gær en íslensku strákarnir voru yfir þegar þrjár mínútur voru eftir af leiknum.
„Við spiluðum góðan leik en við ætluðum að vinna þetta og það var óþolandi að hafa tapað þessu. Við áttum að vinna því við vorum betri að mér fannst," segir Helgi Már Magnússon eftir tapið á móti Ítölum í gærkvöldi.
„Þeir kláruðu sitt en við kláruðum ekki alveg okkar. Þetta eru eitt til tvö "play" sem þurfa að falla okkar megin. Því miður gerðist það ekki og svona er bara körfubolti. Ítalir eru bara drullugóðir og þeir með menn sem geta klárað svona leiki. Við erum reyndar með þá líka en það tókst ekki hjá okkur," segir Helgi Már.
Íslenska liðið er án stiga eftir tvo leiki en liðið hefur komið mörgum á óvart með flottri frammistöðu og öflugri spilamennsku. „Við erum klárir og ætlum að vinna leiki hérna. Við ætlum að að koma fólki á óvart," segir Helgi Már.
Íslenska vörnin var ekki eins sterk í byrjun á móti Ítölum eins og í leiknum við Þjóðverja en svo skiptu menn í rétta gírinn og komu sér með því inn í leikinn.
„Við þurftum aðeins að aðlaga okkur að Ítölunum því þeir eru öðruvísi en Þjóðverjarnir sem við vorum búnir að leggja mikið púður í. Þetta eru aðeins öðruvísi leikmenn með aðra styrkleika," segir Helgi.
„Við bættum aðeins í og þá sérstaklega í vörnina undir körfunni. Þeir voru að fá svolítið mikið af stigum undir körfunni í fyrsta leikhluta en svo náðum við að loka á það í öðrum leikhluta og megnið af leiknum. Þeir fengu eina til tvær körfur þarna undir en annars þurftu þeir að setja niður erfið skot," segir Helgi Már.
Ísland spilar ekki næsta leik fyrr en á þriðjudaginn og mánudagurinn er því hvíldardagur fyrir íslenska liðið.
„Það er flott að fá hvíld til að geta eytt meiri púðri í að undirbúa sig fyrir næsta leik sem er bara stórleikur. Það verður gaman," segir Helgi Már en leikur Íslands og Serbíu hefst klukkan 12.30 að íslenskum tíma á morgun.
Tengdar fréttir
Haukur Helgi: Maður veit aldrei hver er í stúkunni
Haukur Helgi Pálsson, leikmaður íslenska landsliðsins í körfubolta, segir að leikurinn gegn Ítalíu hafi getað dottið báðu megin. Hann var skiljanlega svekktur í leikslok.
Hlynur Bæringsson: Stórkostleg tilfinning að fá að upplifa þetta
"Þetta er gríðarlegt svekkelsi og vonbrigði," voru fyrstu viðbrögð Hlyns Bæringssonar, leikmann íslenska landsliðsins í körfubolta, eftir grátlegt tap gegn Ítalíu á EM.
Craig: Svekktir að missa þetta niður á lokakaflanum
Landsliðsþjálfari Íslands var að vonum svekktur eftir naumt tap gegn Ítalíu í dag en íslenska liðið var yfir þegar þrjár mínútur voru eftir af leiknum.
Hundrað þristar hjá Jóni Arnóri
Jón Arnór Stefánsson varð í gær þriðji leikmaður landsliðsins til að setja hundrað þriggja stiga körfur í búningi íslenska landsliðsins.
Hörður Axel: Erum að vinna okkur inn virðingu frá öllum hérna
Hörður Axel Vilhjálmsson var allt annað en sáttur með frammistöðu dómaranna eftir tapið á móti Ítölum í kvöld og það er vel hægt að taka undir þá skoðun hans að dómararnir hafi verið með NBA-stjörnur í augum.
Áttum aftur möguleika að vinna gegn Ítalíu
Íslenska körfuboltalandsliðið hefur unnið hug og hjörtu margra með frammistöðu sinni í fyrstu tveimur leikjum sínum á Evrópumótinu í Berlín þrátt fyrir tvö naum töp. Liðið stóð vel í hárinu á Þýskalandi og Ítalíu í fyrstu tveimur leikjum liðsins.