Formúla 1

Stewart: Rosberg mun njóta góðs af pásunni

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Jackie Stewart hefur fulla trú á Hamilton en telur að Rosberg geti veitt honum keppni eftir pásuna.
Jackie Stewart hefur fulla trú á Hamilton en telur að Rosberg geti veitt honum keppni eftir pásuna. Vísir/Getty
Jackie Stewart telur að þriggja vikna hléið sem klárast næstu helgi geri niðurlútum Nico Rosberg mjög gott.

Rosberg tók baráttuna innan Mercedes liðsins alla leið í síðustu keppni tímabilsins í fyrra en hefur ekki náð sér á strik í ár. Liðsfélagi hans, ríkjandi heimsmeistari Lewis Hamilton hefur haft betur í öllum tímatökum og keppnum tímabilsins hingað til.

Rosberg er 27 stigum á eftir Hamilton sem leiðir heimsmeistarakeppni ökumanna. Á sama tíma í fyrra var Rosberg með fjögurra stiga forskot.

„Ég held að hann sé svekktur yfir aðstæðunum sem uppi eru og það er erfitt fyrir hann að sjá Lewis aka svona stöðugt betur en hann,“ sagði þrefaldi heimsmeistarinn, Stewart um Rosberg.

„Þetta gæti snúist við. Nico er afburða ökumaður og getur náð réttum kili aftur. Eftir erfiðar keppnir tvær helgar í röð er líklegt að hann njóti góðs af pásunni. Hann mun hafa tíma til að ná áttum,“ sagði Stewart.

Stewart telur Hamilton aka af auknum þroska í ár og að hann sé betri en nokkru sinni.

„Hann er ekki eins mikið upp og niður. Hann er á betri stað, hann er mjög einbeittur að akstrinum. Ég held í hreinskilni sagt að hann geti ekki ekið mikið betur en hann er að gera þessi misserin,“ bætti Stewart við.


Tengdar fréttir

Moss: Rosberg vinnur Hamilton aldrei

Formúlu 1 goðsögnin Stirling Moss segir að Nico Rosberg eigi ekki möguleika á að vinna Lewis Hamilton í baráttunni um heimsmeistaratitil á meðan þeir eru í sama liði.

Bílskúrinn: Barátta í Barein

Lewis Hamilton rétt náði að koma fyrstur í mark í spennandi keppni. Pastor Maldonado tókst ekki að klára og Valtteri Bottas varðist vel.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×