Haukar geta jafnað árangur Keflavíkur | Báðir leikirnir í beinni Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 2. apríl 2015 10:00 Tveir oddaleikir fara fram í úrslitakeppninni í dag. vísir/vilhelm
Það ræðst í dag hvaða lið mæta KR og Tindastóli í undanúrslitarimmunum tveimur í Domino‘s-deild karla. Þá fara fram oddaleikirnir í síðustu tveimur viðureignum 8-liða úrslitanna. Haukar eru í einstakri stöðu því þeir geta náð því að verða annað liðið í sögunni til að vinna einvígi í úrslitakeppninni eftir að hafa lent 2-0 undir. Eina liðið sem hefur afrekað það er einmitt andstæðingur Haukanna í dag, lið Keflavíkur. Það gerðu Suðurnesjamenn í undanúrslitunum árið 2008 er liðið skellti ÍR, 3-2, eftir að hafa lent 2-0 undir en Keflvíkingar fóru þá alla leið og urðu Íslandsmeistarar. Leikur liðanna á Ásvöllum hefst klukkan 16.00 í dag. Þá taka Njarðvíkingar á móti Stjörnumönnum í Ljónagryfjunni. Rimma liðanna hefur verið hnífjöfn og skemmtileg en allir leikirnir í henni hafa ráðist á lokamínútunum. Stefan Bonneau, Bandaríkjamaðurinn í liði Njarðvíkur, hefur verið afar áberandi í úrslitakeppninni og ljóst að það mun mikið mæða á honum í kvöld. Ef Keflavík vinnur í kvöld mætir liðið KR í undanúrslitum og Tindastóll þá sigurliðinu í rimmu Njarðvíkur og Stjörnunnar. Það snýst hins vegar við ef Haukarnir hafa betur gegn Keflavík. Leikurinn í Hafnarfirði hefst klukkan 16.00 og í Njarðvík fer veislan af stað kl. 19.15. Báðir verða í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
Dominos-deild karla Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Töpuðu með ellefu í Tékklandi Handbolti Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira