Erlent

Tveir látnir í skotárás í Þýskalandi

Samúel Karl Ólason skrifar
Frá bensínstöðinni þar sem maðurinn var handtekinn.
Frá bensínstöðinni þar sem maðurinn var handtekinn. Mynd/Twitter
Lögreglan í bænum Tiefenthal nærri Ansbach í Suður-Þýskalandi segist hafa handtekið mann sem skaut tvo til bana nú í morgun. Maðurinn skaut á fólk úr bíl sínum og talið er að minnst einn hafi særst.

Fyrst skaut maðurinn 82 ára gamla konu til bana og svo skömmu seinna skaut hann mann á hjóli. Þar að auki skaut hann á minnst tvo einstaklinga til viðbótar.

Umfangsmikil leit fór í gang eftir að maðurinn flúði af vettvangi á silfurlituðum Benz. Í tilkynningu á vef lögreglunnar segir að hann hafi verið handtekinn á bensínstöð skömmu eftir árásirnar. Þá segir að íbúar séu ekki í neinni hættu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×