Erlent

23 tróðust undir í Bangladesh

Samúel Karl Ólason skrifar
22 konur og eitt barn létu lífið.
22 konur og eitt barn létu lífið. Vísir/AFP
Minnst 23 eru látnir eftir að hafa troðist undir í Bangladesh í nótt. Þar hafði auðugur viðskiptamaður ákveðið að gefa fátökum ölmusu og söfnuðust hundruð manna við heimili hans. Þegar hliðin voru opnuð tróðust 23 undir og 30 slösuðust.

Hinir slösuðu voru flutt á sjúkrahús samkvæmt AP fréttaveitunni. Fólkið hafði safnast saman til að fá fatnað.

Tuttugu og tvær konur og eitt barn létu lífið. Vitni segja að um þúsund manns hafi verið fyrir utan heimilið og þar af hafi að mestu leyti verið aldraðar konur. Eigandi hússins heldur þennan viðburð á hverju ári.

Lögreglan hefur handtekið sex manns og þar á meðal manninn sem á húsið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×