Sport

Ég veit að skeggið er ljótt

Andrew Luck einbeittur.
Andrew Luck einbeittur. vísir/getty
Andrew Luck, leikstjórnandi Indianapolis Colts, spilar mikilvægasta leik ferilsins á um helgina en þarf að svara spurningum um skeggið sitt í aðdraganda leiksins.

Luck skartar ansi vígalegu skeggi en tískusérfræðingar gefa því reyndar ekki háa einkunn. Það gera reyndar þeir sem standa Luck næst ekki heldur.

„Ég veit að skeggið er ljótt. Kærastan mín segir mér það á hverjum degi og mamma mín gerir það líka. Ég geri mér fyrir þessu," sagði Luck léttur á blaðamannafundi.

„Þetta er engin hjátrú hjá mér að safna skeggi. Ég nenni bara ekki að raka mig. Fyrst það er orðið svona sítt þá er allt eins gott að halda því bara."

Á sunnudag spilar hans lið gegn Peyton Manning og félögum í Denver Broncos í átta liða úrslitum NFL-deildarinnar. Luck tók við af Manning hjá Indianapolis fyrir tveim árum síðan og bíða margir spenntir eftir leiknum.

Undanúrslitaleikurinn og úrslitaleikurinn, Super Bowl, verða í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×