Rúmlega eins milljarða króna flughermir, sem búin er fullkominni tækni til að þjálfa flugmenn, var tekin í notkun við hátíðlega athöfn í Hafnarfirði í dag. Líklegt er að erlendir atvinnuflugmenn komi hingað til lands í reglubundna þjálfun í herminum.
Flughermirinn er sá fysti sinnar tegundar hér á landi, en hann er er nákvæm eftirlíking af stjórnklefa Boeing 757 flugvélar. Í herminum er hægt að kalla fram margháttaðar bilanir og þjálfa flug við breytileg veðurskilyrði til að reyna á viðbrögð flugmanna.
Um gríðarlega fjárfestingu er að ræða en flughermir af þessu tagi kostar rúmlega einn milljarð króna. Undirbúningur að því að fá herminn hingað til lands hefur staðið yfir í átján mánuði og byggt var sérstakt húsnæði undir hann. Samningaviðræður eru nú í gangi um að fá erlenda flugmenn hingað til lands í þjáflun.
Ólöf Nordal, innanríkisráðherra, opnaði herminn með formlegum hætti í dag og fékk að sjálfsögðu að prófa að fljúga, eins og sést í myndskeiðinu hér að ofan.
