Sport

Tími fyrir trúðana að flytja úr kjallaranum

Larry Fitzgerald, leikmaður Arizona, fær hér flugferð um helgina.
Larry Fitzgerald, leikmaður Arizona, fær hér flugferð um helgina. vísir/getty
Arizona Cardinals er það lið í NFL-deildinni sem fæstir fylgja á Twitter og líklega hefur fylgjendum fækkað eftir helgina.

Liðið féll þá úr leik í úrslitakeppni deildarinnar með lítilli reisn en liðið gat nákvæmlega ekki neitt gegn Carolina Panthers.

Margir stuðningsmenn liðsins voru pirraðir yfir leiknum og urðuðu yfir sína menn á samfélagsmiðlinum.

Það fór í taugarnar á umsjónarmanni Twitter-síðu félagsins. Sá þakkaði fyrir jákvæð skrif en sagði neikvæðu trúðunum að það væri kominn tími á að flytja úr kjallaranum og njóta lífsins.

Arizona átti gott tímabil en meiðsli komu illa við liðið á örlagastundu.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×