Hugi Guðmundsson hlýtur Íslensku bjartsýnisverðlaunin Atli Ísleifsson skrifar 2. janúar 2015 17:44 Hugi Guðmundsson tónskáld hlýtur Íslensku bjartsýnisverðlaunin 2014. Vísir/Stefán
Hugi Guðmundsson tónskáld hlýtur Íslensku bjartsýnisverðlaunin 2014. Forseti Íslands afhenti verðlaunin við hátíðlega athöfn á Kjarvalsstöðum í dag; sérsmíðaðan grip úr áli frá Straumsvík og eina milljón króna. Hugi, sem er fæddur 1977, nam tónsmíðar við Tónlistarskólann í Reykjavík og útskrifaðist þaðan vorið 2001. Hann lauk mastersgráðu í tónsmíðum frá Konunglegu Tónlistarakademíunni í Kaupmannahöfn 2005 og mastersgráðu í raf- og tölvutónlist frá Sonology-stofnuninni í Den Haag í Hollandi 2007. Í tilkynningu segir að tónverk hans spanni allt frá einleiksverkum til hljómsveitarverka og eru leikin reglulega bæði hér heima og erlendis. Hann hefur starfað með mörgum af helstu tónlistarmönnum landsins, m.a. Herði Áskelssyni, Caput, KaSa-hópnum, Árna Heimi Ingólfssyni, Hamrahlíðarkórnum og Þorgerði Ingólfsdóttur, Schola Cantorum og fleirum. „Hugi hefur níu sinnum verið tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna og hlaut verðlaunin 2007 og 2012, í bæði skipti fyrir tónverk ársins. Hann var staðartónskáld Sumartónleika í Skálholti 2003 og 2005 og var nýlega skipaður einn þriggja listrænna stjórnenda Sumartónleikanna næstu þrjú árin. Verk hans hlutu sérstök meðmæli dómnefndar alþjóðlega tónskáldaþingsins IRC 2006 og 2010. Hann var tilnefndur sem unga tónskáld ársins hjá ISCM, alþjóðasambandi um samtímatónlist, 2011. Hann átti eitt 20 verka sem voru valin úr 500 umsóknum á hinni virtu MATA tónlistarhátíð í New York 2012 og það ár var hann einnig heiðursgestur Musicarama-hátíðarinnar í Hong Kong. Hann vann tónsmíðakeppni Norrænna músíkdaga í Finnlandi 2013 og verk sem hann er meðhöfundur að var tilnefnt til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2014. Í vor hlaut hann þriggja ára starfslaun frá danska ríkinu, en aðeins þrjú til fjögur tónskáld á ári eru valin til að hljóta þau. Í verkum sínum tengir Hugi gjarnan saman nútímann og hefðir fortíðar og kallar þannig fram samspil hins gamla og nýja. Guðni Tómasson valdi "Apocrypha" bestu hljómplötu ársins 2008 og sagði að verkið byði upp á nýjan spennandi tónheim í íslenskri tónlist sem væri engu líkur. Jónas Sen gaf hljómplötunni "Í djúpsins ró" (2013) fimm stjörnur og sagði að Hugi hefði þann sjaldgæfa hæfileika að semja grípandi laglínur; verkin á plötunni væru ávallt fersk, full af ótrúlega hrífandi tilfinningu; platan væri ljós í myrkrinu fyrir þá sem vildu halda á vit innri ævintýra. Frú Vigdís Finnbogadóttir, formaður dómnefndar, kynnti valið við athöfnina í dag. Aðrir í dómnefnd eru Rannveig Rist, Sveinn Einarsson og Örnólfur Thorsson. Sveinn lætur nú af dómnefndarstörfum eftir að hafa sinnt þeim í meira en áratug. Þórunn Sigurðardóttir hefur góðfúslega fallist á að ganga til liðs við dómnefndina í hans stað. Íslensku bjartsýnisverðlaunin hafa verið veitt árlega frá árinu 1981. Þau eru hugsuð sem viðurkenning og hvatning til íslenskra listamanna. Upphafsmaður verðlaunanna var danski athafnamaðurinn Peter Bröste en álverið í Straumsvík hefur verið bakhjarl þeirra frá árinu 2000 eða frá því að Bröste dró sig í hlé.“ Verðlaunahafar undanfarin fimm ár voru Ragnar Kjartansson, Helga Arnalds, Sigrún Eldjárn, Gísli Örn Garðarsson og Víkingur Heiðar Ólafsson.
Mest lesið Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í Fellsmúla Innlent Kári og Sveinn til liðs við Arnar Þór Innlent Dæmi um að leikarar fái 1300 á tímann Innlent Fylgi Sjálfstæðisflokksins aldrei mælst minna Innlent Starfsfólkið slegið eftir brunann Innlent Sprengingar við ísraelska sendiráðið í Kaupmannahöfn Erlent Vance með yfirhöndina í kurteisum kappræðum Erlent Ljúfsár hinsta heimsókn í Blóðbankann Innlent Netanyahu heitir hefndum Erlent Gestur greiðir ekki krónu þó að pallaolía hafi hellst í bílinn Innlent Fleiri fréttir Vaxtalækkun í Seðlabanka og ákall frá Blóðbanka Ljúfsár hinsta heimsókn í Blóðbankann Kári og Sveinn til liðs við Arnar Þór Starfsfólkið slegið eftir brunann Bein útsending: Forseti Íslands og landlæknir á Forvarnardeginum Fylgi Sjálfstæðisflokksins aldrei mælst minna Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í Fellsmúla Líkamsárás og eignaspjöll Leggja til neyðaraðgerðir til að bregðast við „ófremdarástandi“ Fundi aftur frestað til morguns Dæmi um að leikarar fái 1300 á tímann Ráðamenn ríkis og borgar hallast að því að halda áfram með Hvasshraun Segir gagnrýnina ósvífna og ósanngjarna Ólafur Ragnar breytti stöðu forsetaembættisins „Með því alvarlegra sem ég hef séð frá Vinnueftirlitinu“ Mælirinn fullur vegna vanvirðingar á slysstað Vita af tíu Íslendingum í Ísrael Nýjustu vendingar í Ísrael og bróðir í sárum Harður árekstur við Ingólfsfjall Gestur greiðir ekki krónu þó að pallaolía hafi hellst í bílinn Læknir ávísaði lyfjum í nafni konu sem lést níu árum áður Fordæmalaus áform og enginn lagarammi til um eftirlit Ungur ökumaður ekki grunaður um akstur undir áhrifum Ólafur Ragnar Grímsson: Kjörnir fulltrúar eiga ekki að vera í ævarandi leynibandalagi Blöskrar „tvískinnungur“ hjá borgarfulltrúa eftir banaslys Flestir hlynntir inngöngu í ESB og hafa aldrei verið fleiri Tilefnislaus líkamsárás við Traðarkotssund „fyrir Pútín“ Vatnstjón í Hlíðaskóla og krakkarnir sendir heim Telur lykilspurningum um banaslysið enn ósvarað Hreinsaður af ásökunum eiginkonu sveitarstjórans Sjá meira