Sport

Sjö tíma NFL-veisla í kvöld

Í kvöld og nótt kemur í ljós hvaða lið leika til úrslita í stærsta íþróttaviðburði ársins - Super Bowl. Báðir undanúrslitaleikirnir verða sýndir beint á Stöð 2 Sport.

Klukkan 20.00 hefst leikur meistara Seattle Seahawks og Green Bay Packers. Hörkuleikur tveggja frábærra liða. Meistarar Seahawks þó taldir líklegri enda með besta varnarlið deildarinnar og frábæran heimavöll.

Klukkan 23.30 er síðan komið að leik New England Patriots og Indianapolis Colts. New England verið á mikilli siglingu og farið illa með Colts í síðustu leikjum. Enginn skildi þó afskrifa leikstjórnanda Colts, Andrew Luck, en hann verður fljótlega orðinn besti leikmaður deildarinnar.

Líkt og á síðasta ári verður útsending Stöðvar 2 Sport glæsileg. Andri Ólafsson mun stýra pallborðsumræðum sem hefjast í hálfleik á fyrri leiknum. Andri mun fá til sín góða gesti sem munu taka við boltanum í leikhléum og greina það sem er að gerast hverju sinni.

Tómas Þór Þórðarson og Henry Birgir Gunnarsson lýsa síðan leikjunum.

Íþróttadeild hvetur áhorfendur til að taka virkan þátt í umræðum á Twitter meðan á leik stendur og verður notast við kassamerkið #NFLisland.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×