Hann er nú staddur hér í Katar á HM í handbolta og tók Vísir hann tali, bæði um aðkomu Dags Sigurðssonar að þýska landsliðinu og möguleika íslenska landsliðsins í keppninni sem er fram undan.
Kretzschmar segir að það séu hófstilltar væntingar gagnvart þýska liðinu sem hefur gengið í gegnum lægð undanfarin ár.
„Við erum í fyrsta lagi bara ánægð með að vera komin hingað. Við komumst ekki á mótið með hefðbundnum leiðum,“ sagði Kretzchmar í samtali við Vísi. Hann sagði að Dagur hafi haft góð áhrif á þýska landsliðið.
„Þegar undirbúningsleikirnir fjórir eru skoðaðir, og líka leikir liðsins í undankeppni EM í haust sér maður að þetta er lið sem er komið með nýtt andlit.“
„Liðið er farið að spila betri vörn - betri en nokkru sinni fyrr. Boltinn gengur svo hratt í sókninni og liðið er að spila álitlegan handbolta. Æfingaleikirnir gegn Íslandi voru til að mynda góðir,“ segir hann og á þar við æfingaleikina í Laugardalshöll.
„Þess vegna getur maður leyft sér að vera nokkuð ánægður eins og málin standa núna. En þú veist hvernig þetta er - núna byrjar mótið og þá verða spilin stokkuð upp á nýtt.“
Ekki missa af neinu sem gerist á HM. Fylgdu Vísi á Twitter, Facebook og Snapchat (notendanafn: sport365).

„Dagur hafði auðvitað ekkert að gera með þessa leiki við Pólverja á sínum tíma. En ég trúi því meira að segja að Pólland eigi möguleika á því að verða heimsmeistari - liðið tilheyrir að minnsta kosti í hópi fimm bestu liðanna.“
„Dagur var því rólegur á blaðamannafundi í dag en ég tel að Pólland sé sigurstranglegri aðilinn í leiknum. Það sem mestu skiptir er að Þýskaland verði í einu af þremur efstu sætum riðilsins til að sleppa við Frakkland í 16-liða úrslitunum,“ segir Kretzschmar en hann gerir ráð fyrir að Frakkland vinni C-riðil og að Ísland, Svíþjóð og Tékkland komist einnig áfram.
Kretzchmar segir að íslenska liðið hafi greinilega saknað Arons Pálmarssonar í æfingaleikjunum gegn Þýskalandi og því styrki endurkoma hans liðið til muna.
„Alexander Petersson er frábær hægri skytta og Guðjón Valur sömuleiðis í vinstra horninu. Snorri Steinn er afar klókur miðjumaður með mjög mikla handboltagreind og svo tvo baráttumenn á línunni.“
„Það kemur mér alltaf á óvart hversu marga framúrskarandi handboltamenn Ísland getur búið til. Ég held að það séu tvöfalt fleiri íbúar í Leipzig, þar sem ég bý, en á öllu Íslandi.“
„En það eru ákveðnar takmarkanir á liðinu. Það er afar háð Aroni Pálmarssyni sem er besti leikmaður liðsins sem annað hvort vinnur leikina eða tapar þeim. “
„Það er svo bara einn góður markvörður í liðinu. Hinn er ekki svo sterkur. Ísland er því með gott lið eins og svo oft áður en ég tel að það eigi ekki raunhæfa möguleika á sæti í undanúrslitum.“

„Það yrði örugglega ekki auðvelt að spila við Ísland, sérstaklega ef að Aron finnur sig vel á mótinu, en Svíþjóð verður heldur ekki auðveldur andstæðingur. Við unnum Tékka tvisvar í undirbúningnum og kannski yrði það léttasti mótherjinn en maður veit aldrei á HM - það gæti allt gerst.“
„Aðalmálið er að sleppa við Frakkland. Það væri skelfilegt að þurfa að spila við þá í 16-liða úrslitunum.“