Bíó og sjónvarp

Leikstjóri Lego myndarinnar byggði eigin Óskarsverðlaun

Samúel Karl Ólason skrifar
Leikstjórar Lego myndarinnar Phil Lord og Christopher Miller.
Leikstjórar Lego myndarinnar Phil Lord og Christopher Miller. Vísir/AFP
Annar leikstjóra Lego myndarinnar hefur byggt sín eigin Óskarsverðlaun eftir að gengið var framhjá Lego myndinni í tilnefningum Óskarsverðlaunanna.

Phil Lord birti mynd af verðlaunum sínum á Twitter í dag, en myndina má sjá hér að neðan.

Þær teiknimyndir sem fengu tilnefningu eru Big Hero 6, The Boxtrolls, How to Train Your Dragon 2, Song of the Sea og The Tale of the Princess Kaguya.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×