Tónlist

Ný plata Bjarkar nefnist Vulnicura

Freyr Bjarnason skrifar
Björk Guðmundsdóttir gefur út nýja plötu í mars.
Björk Guðmundsdóttir gefur út nýja plötu í mars.
Næsta plata Bjarkar kemur út í mars og nefnist Vulnicura. Þetta tilkynnti hún á Facebook-síðu sinni.

Níu lög verða á plötunni, þar á meðal Stonemikler, Lionsong, Atom Dance og Quicksand. 

Upptökustjórar verða Arca, sem hefur unnið með Kanye West og FKA Twigs, og The Haxan Cloak.

Skilaboðin frá Björk á Facebook-síðu hennar.
Sex af lögunum á plötunni samdi Björk ein, tvö með Arca og eitt með John Flynn. Söngkonan annaðist sjálf strengjaútsetningar.

Björk gaf síðast út Biophiliu árið 2011 með tilheyrandi appi sem vakti mikla athygli. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.