Lífið

Nýja "It" stelpan slær í gegn

Adda Soffia Ingvarsdóttir skrifar
Maddie og Sia
Maddie og Sia Visir/getty
Hin þrettán ára Madison Nicole Zeigler eða Maddie, eins og hún er kölluð dansaði sig inn í frægðarheiminn á einni nóttu þegar hún dansaði í myndbandi tónlistarkonunnar Sia við lagið Chandelier.

Söngkonan hefur nú tekið ástfóstri við Maddie, sem dansaði í öðru myndbandi hennar Elastic Heart, ásamt leikaranum Shia LaBeauf.

Þær stöllur mættu svo saman á Grammy verðlaunahátíðina í eins sérsaumuðum Armani jakkafötum og með eins hárkollur og að vanda sást ekki framan í andlit Sia.

Á Grammy verðlaununum kom Sia fram og með henni var Maddie, sem dansaði með leikkonunni Kristen Wiig og slógu þær stöllur alveg í gegn.

Ljóst er að Maddie á framtíðina fyrir sér bæði í dans-og tískuheiminum. 







Fleiri fréttir

Sjá meira


×